Skírnir - 01.01.1913, Blaðsíða 92
ísland 1912.
Árið 1912 hefði n.átt telja meðalár til lands og sjávar, ef
slysin á sjónum hefðu ekki verið óvenjulega mikil. Veturinn var
heldur góður; vorið ágætt, en þó nokkuð þurviðrasamt. Gras-
vöxtur góður og sláttur byrjaði snemma. Sumarið, er á leið, kalt,
og um mánaðamótin júlí—ágúst gerði norðanhret með frosti og
snjókomu, er stóð í viku, og muna menn ekki annað eins um þann
tíma árs. I Norðurlandi var hvítt yfir sveitirnar að sjá og um-
brota-ófærð á fjöllum. Skemdust í þeim kuldum kálgarðar norðan-
anlands. En uppskera úr görðum hór syðra var í fullkomnu meðal-
lagi. Haustið var fremur illviðrasamt; snjóveður og kuldar í
nóvember, en desember hlýrri.
Á vetrarvertíð var tregt um fisk, en aflaðist þó ekki illa af
því að skip lögðu snemma út. Á vorvertíð gekk þilskipunum í versta
lagi, en botnvörpuskipin öfluðu þá vel austur hjá Hvalsbak. Sum-
arvertíð var í bezta lagi, en haustafli heldur ryr. Eftir að vor-
vertíð lauk gekk treglega fyrir botnvörpuskipunum. Mörg þeirra
fóru þá á síldveiðar og var aflinn óvenjutega mikill fyrst í stað,
en síðan þvertók fyrir hann. Síðustu árin hafa botnvörpuskipin
verið fyrir Yesturlandi í nóvember og desember og saltað afla sinn.
Nú hefir verið gæftalítið þennan tíma og afli í minna lagi.
Við Austurland hefir afli verið ( göðu meðallagi, mestur á
vólarbáta, en á róðrarbáta lítill. Við Vestmannaeyjar var afli með
rýrasta móti. Á Vestfjörðum hefir afli á vólarbáta verið miklu
minni en að undanförnu, því þar brást bæði vetrarafli og vorafli.
Mannskaðar á sjó hafa verið miklir. Úr Reykjavík fórust um
vorið tvö þilskip, »Geir« með 27 menn og »Svanur« með 14 menn.
Svo fórst og fiskiskipið »Síldin« af ísafirði með 11 menn. Auk
þessa fórust ekki fáir einstakir menn af öðrum fiskiskipum, þótt
þau kæmust af, t. d. 6 menn seint í febrúar, í stórviðri, sem þá
fór yfir. Hefir verið sýnt fram á það, í fyrirlestri, sem G. Björns-
son landlæknir hélt um mannskaðana, að við þilskipaveiðarnar hafi
fleiri menn farist hór hlutfallslega en við bátaveiðarnar áður, og að
manntjón við fiskiveiðar só hór yfir höfuð miklu meira en í nálæg-
um löndum, svo sem Noregi, en þar eru allar ástæður líkastar
því, sem hór er. Auk þessa manntjóns á þilskipunum hafa ýms
önnur sjóslys orðið. 10. jan. druknuðu 6 menn á höfninni við