Skírnir - 01.01.1913, Side 94
94
ísland 1912.
en steyp'ar bitabrýr á Öxará og Úlfarsá í Mosfellssveit og Steins-
læk í Holtum. A Öxará og Úlfarsá voru áður trébrýr.
Fyrsta ullarþvottastöðin var í sumar reist í Borgarnesi á Mýr-
um, eftir fyrirsögn Sigurgeirs Einarssonar, sem kynt hefir sór ný-
lega með styrk af landsjóði ullarverkun og ullarsölu erlendis.
Hefir þessi byrjun reynst vel, og því líklegt að ullarþvottastöðvar
komi upp víða um landið á næstu árum.
Síldarbræðsluverksmiðjur hafa komið upp í Norðurlandi nú
síðustu missirin, bæði á Siglufirði og við Eyjafjörð. Eru það út-
lendir menn, sem þær hafa reist.
Hafnarbryggja mikil hefir í ár verið gerð í Hafnarfirði.
Aukaþing var haldið í ár og kom saman 15. júl/. I byrjun
þings urðu stjórnarskifti, Kristján Jónsson sagði af sér ráðherra-
störfum, er við tók Hannes Hafstein, í annað sinn, og hafði til
þess fylgi mikils meiri hluta þings. Snemma á árinu höfðu komist
á samtök milli ýmsra mikils megandi manna bæði í Heimastjórnar-
flokknum og Sjálfstæðisflokknum um það, að vinna í sameiningu
að framgangi sambandsmálsins, sem að undanförnu hafði verið deilu-
efni milli stjórnmálaflokkanna. Var þeim samtökum mjög vel
tekið úti um landið og kom það hvervetna fram á þingmálafund-
um, að menn voru þeim hlyntir. Þegar á alþing kom, varð
þetta til þess, að nýr flokkur myndaðist þar og nefndi sig »Sam-
bandsflokk«. Gengu í hann yfir 30 þingmenn, með því helzta
markmiði, að fá sambandsmálinu ráðið til lykta. Flokkurinn kom
sér saman utan þings um breytingar á frumvarpinu frá 1908 og
þingið fól svo ráðherra með þingsályktunartillögu að leita hófanna
um það í Danmörku, hvort ekki væri gerlegt, að taka málið upp
að nýju. Ráðherra hefir nú, skömmu fyrir áramótin, birt árang-
urinn af þeim málaleitunum, og bíður það svo þings að sumri, að
ákveðið verði, hvernig með málið skuli farið. En af þessum sam-
tökum hefir það leitt, að friður og samlyndi hefir verið í landinu
þetta ár, sem stingur mjög i stúf við stjórnmálarifrildi undanfar-
inna ára.
Tilefnið til aukaþinghaldsins hafði verið það, að samþykt var
á þingi 1911 frumvarp til breytinga á stjórnarskránni. Úm það
frumvarp fór svo, að ráðherra (Kr. J.) lýsti því yfir í byrjun þings-
ins, að konungurinn hefði ekki viljað ljá samþykki sitt til þess að
frumvarpið, eins og það lægi fyrir, yrði lagt fyrir þingið af hálfu
stjórnariunar. En orsökin til þessa væri sú, að felt hefði verið
burtu ákvæðið um setu íslandsráðherra í ríkisráði Dana. Var svo
stjórnarskrármálið látið eiga sig á þessu þingi, enda sneri þingið
sér að sambandsmálinu, eins og áður segir.
Friðrik konungur 8. andaðist 14. maí þ, á. Hafði hann verið
Islandi góður konungur og var hans hér mikið saknað. Kr. Jóns-
son ráðherra flutti alþingi vingjarnlegan boðskap frá hinum nýja
konungi, Kristjáni 10., og þar með þau ummæli, að konungur ætl-
aði sér að heimsækja Island, er tækifæri leyfði.
Helztu lög frá þinginu eru þessi: Um færslu þingtímans, að
alþingi komi framvegis saman 1. virkan dag í júlí; um landssjóðs-