Gangleri - 01.12.1870, Side 43
43
ur Jónsson á Ilöskuldsstöðum, Þorlákur prcstur Jönsson
á Skútustöðum við Mývatn. Aðfaranóttina hins22. des-
emberm. þ. á. andaðist hjer í bænum eptir stutta legu
verziunarm. Kr. ólafsson Briem, á 26. aldurs ári Hann
var mesta ljúfmenni, gáfaður vel og hagorður.
Afli. A Norður-og Austurlandi hefir fiskafli í haust
lil jafnaðar mátt heita góður, og sumstaðar í bezta lagi,
svo sem í kring um Húnaflóa, Eyjafjörð og sumstaðar
á Austfjörðum, og eru á þessum stööum hlutir sagðir
komnir hátt á annað þúsund. Smokkfisk eða kolkrabba
hefir í haust víða rekið á land bæði hjer nyrðra og
vestra, og hefir það orðið til hinnar inestu aflabótar.
Fiskafli nú (um jól) er víðast orðinn lítill; aptur hefir
hjer á Eyjafirði um næstliðna viku (frá 14.—22. des.)
verið skotið allmikið af svartfugli. — Að kveldi hins 20.
des. kornu tvö marsvín upp undir fjöru fyrir Stóraeyr-
arlands landi, sem liggur rjett fyrir utan Akureyrarbæj-
arlóð, og voru þar unnin af Yerzlunarstjóra E. E. Möll-
er og syni hans Kristjáni. Marsvín þessi voru að lengd
10 álnir frá haustrjónu að sporðblöðku. A Suðurlandi
er sagt að hafi verið fremur aflalítið.
V e r z 1 u n. Hjer á Akureyri eru enn töluverðar vöru-
byrgðir, en þó munu þær brátt minnka, því hingað er
sótt að, auk Eyjafjarðarsýslu, úr þingeyjar-og Skaga-
fjarðarsýslum, þar kaupstaðirnir í báðum þeim sýslum eru
allslausir. Verðlag á vöruin er hjer hið sama og 3.
hepti rits þessa getur um. í Reykjavík hafði kornvara
verið sett upp um byrjun septemberm., en var sett nið-
ur aptur um miðjan október, eptir að Sigfús Eymundsson
kom á gufuskipinu „Þór“ frá hinu norzka verzlunaríje-
lagi í Björgvin, því hann seldi eigi matvöru nema 10
—ílrd. eins og almennt var í sumar, nema einkar gott
bankabygg á 13rd. Að tilhlutun Sigfúsar hefir Norð-
manna verzlunaríjelag þetta rekið einkar góða og mikla
verzlun í Reykjavík, Hafnarfirði og Stykkishólmi; og er
það sannarlega hrósvert hvað Sigfús hefir getað, þó sem
fátækur maður, gjört löndum sínurn mikið gagn með þess-
ura verzlunar útvcc;.