Gangleri - 01.12.1870, Side 44
44
Hundafárið, sem gengið hefir í haust austan-og
norðanlands, hefir nú fært sig suöur yfir fjöllin, og hefir
engu síður sýnt sig þar allskætt og breiðst fijótt út, sem
hjer nyrðra. Þó hefir dýralæknir Snorri Jónsson dreg-
ið nokkuð úr fári þessu með meðölum úr lyfjabúðinni
í Reykjavík; cn þess er eigi getið hver þau sjeu, sem
virtist þó allnauðsynlegt, ef mönnum almennt gæti orðið
það að notum. Líka er sagt að sýki þessi sje að fær-
ast yfir Vesturland á báða bóga að sunnan og norðan.
Hrossafár kom upp á Suðurlandi nálægt Reykja-
vík hjer um bil hálfan mánuð af vetri þessum, og greip
þegar svo brátt um sig, að 6 hross voru dauð að viku
liðinni. Veiki þessi byrjar eptir því sem oss er skrifað,
með sleni og magnleysi, svo afl dregur gjörsamlega úr
skepnunni á mjög skömmum tíma. Að tilhlutun yfir-
valdanna hafa verið bannaðar allar samgöngur með hross
um það svæði, sem faraldur þetta hefir gjört vart við
sig í.
Fjárkláðinn er að vísu enn við líði á Suður-
landi, en ekki hefir hans orðið vart nema í Ásláksstaða-
hverfinu á Vatnsleysuströnd, að því er Þjóðólíur 11.
nóvember skýrir frá.
þar vjer ímyndum oss, aS lesendum rits vors sje kunnug
tildrög til styrjaldar þeirrar, er hafizt hefir milli Frakka og
Prússa, þá viljum vjer hjer einungis geta hinna helztu vií)-
burða er síöast hafa frjetzt af því.
S t r í ð i í) milli Prússa og Frakka hjelt á fram þá er síðustu
fregnir bárust (2. núv. sjá þjdðólf 23. ár nr. 3 — 4). Prússar
höfðu þá tekib hverja borgina af annari á Frakklandi, síðan
Napoleon 3. gaf sig þeim á vald (2. september, og situr [liann
síðan veihaldinn í slotinu Wilhelmshöhe í Hesser.-Cassel), og
voru búnir að vaða yfir allan austur og norðurhlnta landsins,
og höfðu seinast í oktdber tekið sjer stöfevar mitt á milli Par-
ísarborgar og kastalans Metz, og þegar byrjab umsátur nm
hvorttveggja, borgina og kastalann.
Nokkru síðar, eða um lok mána&arins, náðu þeir Metz, og