Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1894, Qupperneq 3
3
kosti stendur það vel heima eftir afstöðu, að Þrælagarðurinn sje
Hagagarður sá, er Lndn. nefnir, svo að um hann getur naumast
verið vafl. 0g aftur getur Hagagarður hugsazt að standa í sam-
bandi við bæjarnafnið Hrossáac/a, þó þess þurfl raunar ekki.
III. Skálholt.
Það mætti ætla í fljótu bragði, að talsverðar fornleifar sæist
í Skálholti. En það er þó mjög lítið, og er slikt eigi undarlegt,
þegar að er gætt. Því þar sem byggð heflr ávallt haldizt, hefir
hver breytt annars verkum, mann fram af manni, svo bygging-
ar sjást þar að eins i siðustu mynd. Nú á dögum man enginn
eftir byggingum þeim, er þar voru á dögum Finns biskups. En
Sigurður Pálsson bóndi á Laug, fróður maður og minnugur, heflr
sagt mjer, að þá er hann bjó á Spóastöðum i Skálholtssókn (fyrir
1850), hafi í Skálholti verið sveitarkarl, er Jón hjet Jónsson, þá
orðinn gamall og blindur, en hafði áður búið lengi i Laugarási
og verið þar upp alinn. Hann hafði þótt merkismaður, greindur
vel, skaldmæltur og snilldarmaður. Hann hefði sagt sjer margt
um hýsingu á staðnum á Finns dögum. Þá lágu traðirnar aust-
an að bænum, eins og nú, fyrir neðan kálgarðinn, vestur fyrir
hann og þar upp K hlaðið. Þangað lágu líka aðrar traðir vest-
an og neðan að hjá Þorláksbrunni, sem enn er þar vatnsból. Þá
var þar raunar ekki kálgarður; en fram við austurtraðirnar, þar
sem nú er kálgarðurinn, stóð þá bær Magnúsar lögmanns, og
sneru þil á honum suður. Biskupshúsin voru þar, sem nú er bær-
inn. Var sem forskáli framan við þau, kallaður »portið«, ogvar
innangengt úr því í öll húsin. Fyrir vestan bæinn lágu norður-
traðirnar af hlaðinu upp hjá Staupasteini og upp fyrir norðan
kirkjugarðinn, eins og nú, og heygarðurinn var þar, sem enn
er vesturbæjar'-heygarðurinn vestanmegin traðanna hjá Staupa-
steini. En þar fram af, fyrir vestan hlaðið, þar sem austurbæj-
ar-heygarðurinn er nú, var þá mikil útihúsaröð, er öll höfðu þil
og sneru suður. Fyrir austan bæinn var undirgangurinn (úr
»portinu« ?) upp í kirkjuna, og skólahúsin fyrir austan hann. Þau
voru tvö samhliða, og sneru þilin til suðausturs. Austur frá þeim
var »aldingarður«, er lá í brekkuhalla upp að kirkjugarðinum.
Þar voru ræktaðar ýmsar jurtir, og hefir kúmen verið þar síðan.
1) Það er nefnilega tvíbýli í Skálholti.
1*