Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1894, Side 4
4
Þannig lýsti Jón blindi staðnura eins og hann hafði verið á sið-
ustu árum Finns. En ekki vissi Jón hvaða byggingar verið
höfðu báðum megin við vesturtraðirnar hjá Þorláksbrunni. Þar
sjást miklar rústir, en þó engin húsalögun. Þær eru vist eldri.—
Jón biindi var nær 100 ára gamall og dó litlu fyrir 1850. — Þar
sem »undirgangurinn« var upp í kirkjuna, sjest enn djúp laut,
og liggur hún að miðri suðurhlið kirkjunnar. Þar hefir áðurverið
framkirkjan, — því meðan þar var dómkirkja, hefir hún verið
meir en helmingi stærri en kirkjan, sem nú er. Sjest nokkurn
veginn fyrir ummáli hennar fyrir aftan kirkjuna nú. Þar hefir
tekið við aðal-breidd hennar, — þvi hún hefir verið byggð í kross.
Hefir norðanmegin heitið norðurstúka, og verið hjer um bil 5
faðma löng (eftir kirkjunni) og 3 fðm. breið (út frá kórsbreidd).
Að sunnanverðu var suðurstúka, og sjer ógjörla fyrir stærð henn-
ar, en virðist hafa verið viðlíka og norðurstúkan. Kórinn þar
aftur af, hefir verið 7 fðm. langur og 5 fðm. breiður. Allt það
svæði, sem kirkjan hefir náð yfir, er nú fullt af grjóti, hvar
sem teini er niður stungið og sumir steinarnir sjást. Hefir því
grjóti verið raðað undir timburgólf dómkirkjunnar, því öll hafði
hún verið úr timbri; svo sagði Sigurði Jörundur, bóndi á Laug,
Illugason smiðs. Hann var smiður góður, sem faðir hans, og
hafði verið með að taka ofan dómkirkjuna um aldamótin. Hann varð
gamall og dó á Laug löngu eftir að Sigurður flutti að Haukadal
(en Laug er hjáleiga frá Haukadal og þar nærri;. Sagt er, að
kaþólsku biskuparnir hafi verið grafnir i norðurstúkunni. Þó er
þar ekki dýpra á klöpp en manni i öxl; — ljet jeg grafa þar dá-
litla gröf og fylla aftur. Ekkert fannst þar, utan hauskúpubrot
litið, og járnnagli svo sem J/2 þuml. langur. Hafi hann verið úr
likkistu, þá hefir hún verið úr þunnum borðum. Norðaustantil i
kirkjugarðinum er tóft, sem enn heitir Þorláksbúð, nál. 6 faðma
löng og 3 fðm. breið. Þar ljet Ögmundur biskup syngja messu,
eftir að kirkjan brann. — Fyrir norðan traðirnar, uppi á túninu,
er óglögg rúst af svo nefndu »viðarmannahúsi«, sem um er getið
þá er kirkjan brann. Norðvestast f túninu heitir íragerði, þar er
sýnt leiði hinna írsku sveina Jóns biskups Gerrekssonar. Það
er upphækkun nál. 12 fðm. löng og nál. I1/* fðm. breið. Enginn
veit nú, hvar Diðrik af Mynden og menn hans eru dysjaðir. Jeg
ljet grafa þar, sem líklegast þótti, i og hjá Söðulhól, og varð
einskis visari. En það er ekki að marka, jarðvegur austur frá
hólnum er blautur, dysin því sokkin niður og ófinnanleg. — í
kirkjunni og við kirkjudyrnar eru nokkrir legsteinar og legsteina-