Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1894, Page 6
0
Hannesar, Jóns Wídalíns, Þórðar, Jóns Árnasonar, Sigfúsar Þórð-
arsonar og Jóns Halldórssonar, og fylgir sú afskrift hjer með.
Nokkra forngripí á kirkjan í Skálholti enn. Þeir eru: Ljósa-
hjdlmur mikill af kopar með 15 (o: 7+8) liljum. Altarisbrún
með 14 silfruðum látúns(?)doppum, og fylgir sú sögn: að þetta
sje belti Þórgunnu. Ilökull úr rauðu silkiflöjeli (?) með rósum. Á
honum eru breiðir, útsaumaðir borðar bak og fyrir og yfir um
báðar axlir; á þeim eru margar fagrar og vandaðar myndir, t.
d. (ábakinu): Kristur á krossinum og María hjá, en engill rjettir
benni bikar; María með barnið (á tveim stöðum) og margar aðr-
ar. Ljósastjákar tveir úr kopar; á þeim stendur: »Islands Com-
pany 1651«. — í bæjarhurð austurbæjarins er digur járnnagli
með koparhnúð á endanum, hreisturskornum, hafður fyrir hand-
fang. Segir Sigurður Pálsson, að sig minni fastlega, að þessi
nagli hafi verið i skemmuhurð i Skálholti áður, þá er hann bjó
á Spóastöðum. En sú skemmuhurð hafði verið flutt i Skálholt
frá Snæfoksstöðum, en þar hafði hún verið kirkjuhurð áður. Ef
til vill er það sama hurðin, sem nú er bæjarhurð, því nýleg er
hún ekki að sjá. — Mjög er áríðandi að vernda hinar fáu forn-
menjar, sem enn finnast í Skálholti.
IV. Hoftóft í Úthlíð o. fl.
Hoftóft Geirs goða er sýnd í Úthlíð niðurundan bænum i
túnjaðrinum, og liggur mýri að henni neðan og vestan. Það er
ákaflega mikil rúst, næstum sporöskjumynduð, nál. 60 faðm. um-
máls og allt að 3 al. á hæð frá jafnsljettu sumstaðar. Hún ligg-
ur frá austri til vesturs. Meir en helmingur rústarinnar að aust-
anverðu er ein stór tóft um 10 faðm. á lengd og viðlíka á breidd,
mælt út á veggi, en þeir eru allstaðar ákaflega fyrirferðar mikl-
ir. Hornin eru ekki hvöss, en þó er tóftin fremur ferhyrnd en
kringlótt. Dyr hafa verið út úr norðvestur horninu. Rjett fyr-
ir vestan þær hafa verið dyr inn í aðra tóft, sem liggur vestan-
við hina. Milli þeirra virðist þó ekki hafa verið einn veggur,
heldur tveir og mjótt sund á milli. Sú tóft er 10 faðm. löng,
hún liggur frá norðri til suðurs yfir þvera rústina, og 2 faðm.
breið nær dyrum en 3 faðm. nær gafli. í henni innanverðri
vottaði fyrir lítilli upphækkun. Vestan við innri (syðri) enda
hennar er 3ja tóftin; hún er mjög lítil: nál. 3 faðm. löng og
tæpl. 2 faðm. breið og snúa dyr suður. Undir henni og miðtóft-