Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1894, Page 7
7
inni virðist sami milliveggur. Hafi nú, sem ætla má, austasta
tóftin verið veizlusalur, en miðtóftin goðahús, þá er eítir að vita
til hvers litla tóftin hefir verið. Má vera að helgi-áhöld hafi
verið geymd í því húsí. Svo virðist, sem öll þessi bygging, sem
á sínum tíma hefir verið mikið mannvirki, hafi nær eingöngu
verið gjör at torfi: Þó teini sje stungið niður í hana, verður
ekki grjót fyrir nema í örfáum stöðum, t. d. kringum dyrnar og
í innanverðri miðtóftinni, þar sem mótaði íyrir upphækkun.
Kom mjer í hug, að þar hefði verið goðastalli og Ijet grafa þar
gröf. Urðu þar nokkrir steinar fyrir, er virtust vera úr hleðslu,
en svo var hún úr lagi gengin, að ekki var unnt að ákveða
lögun hennar. Lítið eitt fannst þar af viðarkolum. Það var
hvorttveggja, að illt var að fá verkamenn, því menn áttu ann-
ríkt, enda áleit jeg ekki til neins að grafa meira, þar eð rústin
virtist annaðhvort svo að segja grjótlaus, eða, þó grjót hafi ver-
ið í undirstöðum, þá verði ekki að því komist, nema með því,
að umróta rústinni allri, sem y^rði mikið verk og alls eigi þarft,
þar eð hún er glögg, eins og hún er, og mikill skaði að spilla
henni. Það grjót, sem í henni kanrf að vera, hlýtur lika að
vera mjög úr lagi fært, því nærri má geta, að klakinn hefir ár-
lega mikil áhrif á það, þar eð rústin liggur í raklendi. Er því
tvisýnt, að af því sæist lögun tóftanna betur en nú sjest. Telja
má víst, að kringum rústina hafi áður verið þurlendi og skógi
vaxið, en síðan orðið mýri, sem víðar má sjá merki til. — Gröf-
ina ljet jeg fylla aftur og ganga frá sem áður var.
Upp 1 túninu í Uthlíð er lítil rúst, kölluð tíríia, sem sumir
ætla haug Geirs goða, en er þó eins líkleg til að vera saman-
felldur og yfirsljettaður smákofi nokkur. Þar heitir og Bjarnar-
þúfa austur í túninu, einstök þúfa eigi allstór. Þar á Björn
nokkur járnsmiður, að vera grafinn með smíðatólum sínum; um
hann vita menn ekki annað. Ekki sýndist mjer að grafa í þúfur
þessar, þó menn hefði fengizt. Það hefði að eins gjört tún-
spjöll, en naumast neitt á því að græða, enda við ekkert sögu-
legt að styðjast.
Bollasteinn er i bæjarstjettinni í Uthlíð. Hann er flatur,
nál. U/4 al. langur, 1 al. breiður og 7—8 þuml. þykkur. Boll-
inn er í annari hlið hans, og ólíkur öðrum slíkum bollum, þeim
er jeg hefi sjeð: hann er víður mjög, en tiltölulega grunnur, af-
langur, nál. 1 al. á lengd, 3/4 al. á breidd og 3—4 þml. á dýpt.
Þar sem steinninn er nú, snýr bollinn niður, og verður að velta
steininum við til að skoða hann. Annar bollastehin fannst í vor