Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1894, Page 8
8
í Múla í sörau sveit. Hann er lítill; vegur á að gizka 8—9 fjórð-
unga. Brún er neðau á honum, svo hann getur ekki staðið rjett-
ur nema í lægð eða með því að undir hann sje sett. Er að sjá
sem brotnað hafi skáhalt neðan af honum. Bollinn í honum er
vel myndaður, kringlóttur, nál. lj4 al. í þvermál og 3—4 þml. á
dýpt. Nu er steinninn við smiðjudyr í Múla, hafður fyrir herzlu-
þró við smávegis járnsmíði.
V. „Lögrjetta í Haukadal“.
Milli Helludals og Neðradals (Neðra-Haukadals í Biskups-
tungum heitir á einum stað Laugartorfa milli gilja tveggja aust-
anundir fjallinu. Hún er vaxin hrísi, og er það að aukast. Þar
eru rústir neðst í torfunni, auðsjáanlega af fornum þingstað.
Sjest þar hringur, eins og víðar á fornum þingstöðum, rúml. 8
faðm. í þvermál. Búðatóftir sjást þar nokkrar, fyrir víst 12 eða
13 og geta vel verið fleiri, því íllt er að sjá þær, einkum siðan
hrísið fór að aukast. Svo heflr og gilið, sem öðrum megin er,
bæði brotið af torfunni, og líka borið skriðu yflr hana neðan til,
og er bágt að segja hve margar búðatóftir það kann að hafa
eyðilagt. Engar sögur fara af því, hvaða þing hjer hefir verið
háð. En í sögu Guðmundar biskups Arasonar, 8. kap. segir
svo: »Þá er Guðmundur var XVII vetra var .... lögrjetta i
Haukadal«. Litur út sem alþingi liafl þá verið flutt þangað um
hríð, líklega vegna ófriðar með mönnum, þó frásagnir um það
sjeu nú ekki til. Er hugsanlegt, að þingstaðurinn sje frá þeim
tíma.
VI. Rúst hjá Helludal.
Mjer var bent á að skoða rúst í túnfæti í Helludal. Það
er ein tóft, æði stór og hjer um bil kringlótt. Mun það vera
stakkgarður, er Haukadalsmenn hafa notað áður en bær var
gjör í Helludal. Þar er og annar stakkgarður neðar í engjun-
um; þeir tíðkuðust mjög til forna, og drógu menn þaðan heyið á
sleðum á vetrum, er hjarn var.
VII. Marteinslaug.
t
Marteinslaug heitir fyrir vestan tún í Haukadal. Ovíst er