Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1894, Page 11
11
það er, þá hafa þessi blóthús ekki verið annað en heimilishof.
Mun það hafa verið nokkuð almennt, einkum hjá þeim bændum,
sem í goðorðum áttu, að hafa slík hof heima hjá sjer. Ekki er
hægt að segja, hver í Fjalli bjó og hofíð átti. Sögur geta þess
ekki. Það hefir þó án efa verið mikilsháttar maður. Mjer hefir
dottið í hug, að Úlfur Uggason, sem nefndur er í Kristnisögu,
Njálu og Laxdælu, hafi búið í Fjalli. Úlfsgil gæti verið kennt
við hann. Það er sunnan í Vörðufelli, en bærinn Fjall er vest-
anundir sama feili. Úlfur hefir verið mikilsháttar maður, þar eð
hann áræddi að deila við Ásgrím Elliðagrímsson, og hefði haft
hærra hlut, ef Gunnar hefði ekki veitt Ásgrími lið. Úlfur hefir
eigi búið í mikilli tjarlægð frá Þorvaldi hinum veila, er hann vildi fá
Úlf í nokkurskonar bandalag við sig, móti þeim Þangbrandi og
Guðleifi. En Þorvaldur bjó að Vík í Grímsnesi. Þar heitir nú
Heyvik, en sumir kalla Eyvík,1 og er skammt fyrir utan Hvítá
næstum móts við Fjall. Við þessar líkur á tilgátan að styðjast.
X. Árness-Þingstaburinn forni.
Árness-Þingstaðurinn forni hefir, eins og Árness-þing sjálft,
nafn sitt af Arnesinu, sem nú á timum er ey mikil í Þjórsá fram
undan Hofi í Gnúpverjahrepp. Nafnið bendir þó til þess, að Ár-
nesið hafi áður verið landfast, en ekki ey eins og nú. Fyrrum
rann Þjórsá fyrir sunnan það; er þar enn farvegur hennar all-
breiður og rennur dálítil kvísl í honura, en aðal-áin rennur nú
fyrir norðan Árnesið og skilur það frá Árnessýslu. Hefir sú
breyting orðið á miðöldunum, og liklega smátt og smátt, annars
væri hennar getið sem merkis-viðburðar. Hraun er undir jarð-
veginum í Árnesinu, og er það framhald hraunsins sem myndað
hefir Hofsheiði; en framhald Árness-hraunsins er hraunið undir
jarðveginum á Skeiðunum. Norðausturendi Árnessins er áfastur
Hofsheiði á mjóum hraunrima. Yfir um hann hefir áin brotið
sjer farveg og fellur norðvestur af brún hans um foss, er Búði
heitir eða upprunalega Búðafoss, og hefir hann nafn af þing-
búðunum. Það nafn hefir fossinn því hlotið að fá á meðan þing-
staðurinn var notaður og áður en búðirnar lögðust niður. Foss-
1) Rjettara mun Heyvík. Mun Vík í Grímsnesi hafa verið aðgreind
frá Vík í Grafningi með því, að hún var kennd við hey (Heyvík) en hin
við haga (Hagavík) eftir landskostum hvorrar fyrir sig.
2*