Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1894, Page 12
12
inn hefir því hlotið að vera til þegar 1 fornöld, en þA heflr hann
þó verið litill, því ekki hefir þá runnið þar neraa mjög lítil kvísl.
Er ef til vill sennilegast, að hún hafi runnið um glufu gegn ura
hraunriraann og fossað út úr brún hans, sera þá hefir verið hærri
og nokkuð breið og myndað jarðbrú yfir hinni litlu kvisl. Með
þeim einum hætti gat það farið saman: að fossinn væri til i
fornöld og Árnesið þó landfast, sem hefir orðið að vera, því
annars hefðu menn ekki kallað það nes, heldur ey. I Árnesinu
er jarðvegur nú víða blásinn af og bert hraun eftir. Vestan til
i þvi miðju standa nokkrir stuðlabergs-hólar upp úr hrauninu og
er einn miklu stærstur; hann heitir Þinghóll, og verður nefndur
siðar. Kringum hóla þessa kemur móbergslag í ljós á nokkrum
stöðum. Móbergs-kenndur stapi all-hár stendur norðvestan ár-
innar gagnvart Búða. Hann heitir Búðaberg, og er það suðaustur-
endinn á holti því, sem bæirnir Stóra-Hof og Minna-Hof standa
suðvestan undir. Slakki er í holtinu vestan við Búðaberg, og
eru tóftir hinna fornu þingbúða i honum; hafa sumar þeirra
staðið vestan i hæð þeirri sem myndar bergið; en þar er nú
jarðvegur blásinn af og sjest ekki eftir af búðunum annað en
grjót i miklum breiðum, sem auðsjáanlega er fært þangað af
mönnum, þó nú sjáist þar hvergi fyrir lögun búðanna með vissu.
Þar sem slakkinn er óblásinn, má sjá fyrir vist 30 búðatóftir.
Þó eru sumar þeirra ekki vel glöggar, því sandrok hefir hálf-
sljettað yfir þær, og ofan í nokkrar sýnist að kofar hafi verið
byggðir einhvern tima á öldunum. Af beztu tóftunum er 12
raðað nokkurn veginn reglulega kringum ferhyrnda sljetta lægð,
sem er nál. 30 faðma löng og viðlíka breið. Þær virðast allar
hafa haft dyr á þeirri hliðinni, sem að lægðinni snýr. Suðaustur
úr þessari lægð er opið sund yfir í aðra aflanga lægð sem liggur
frá norðaustri til suðvesturs og er nál. 60 faðma löng og rúml.
20 faðma breið, þar sem hún er breiðust. Utan með henni allri
hafa líka verið búðaraðir, en ekki sjást þær nema norðvestan
megin eitthvað 5—6; virðist sandrok hafa sljett yfir sumar, er
gengið hafa fram milli lægðanna norðaustanvert, þvi þar er sand-
gári kominn fram að. í honum sjer grjót úr fyrir vist 2 búðum,
og er önnur með óhaggaðri lögun. Suðaustanmegin við löngu
lægðina er allur jarðvegur blásinn af austan af Búðabergi vestur
á brún lægðarinnar. Eru grjótbreiðurnar sem fyr var gétið, úr
búðum þeim, sem staðið hafa þeim megin lægðarinnar. Hafa
þær verið á að giska 8—10; það sjest ekki með vissu.
Austur og norðaustur af hinni ferhyrndu lægð eru 10 (eða 11?)