Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1894, Síða 18
18
löng og snýr dyrahliðinni að henni. Þessi búð heyrir eiginlega
miðröðinni til, en hin neðri verður að teljast með hinni innstu,
þó hún sje þar að baki. Miðröðin er uppi í hvylftar hallanum
og er hún ekki eins samföst og skipuleg eins og hin innsta. í
henni eru 10 tóftir auk tveggja frálausra norður við farveginn.
Svo er og 1 fyrir vestan götuna, sem á heima í þessari röð.
Norðustu búðirnar í þessari röð hafa snúið gafli með dyrum á
að innstu röðinni, en hinar flestar snúa hliðvegg með dyrum að
henni. Yzta röðin er uppi á hvylftarbrúninni. Er brúnin hæst
rjett fyrir austan götuna og þar eru á henni 5 búðir í röð sam-
fastar og er engin mjög stór. Svo lækkar brúnin og hverfur
næstum. Eru 3 tóftir þar í röð norður að farveginum; þær eru
sundurlausar. Undir hinni norðustu er sjerstök hæð og er sú
tóft næstum jöfn á lengd og breidd: um 4 faðmar. Fyrir vestan
götuna heldur þessi röð áfram, og eru þar 5 búðir og hin lengsta
12 faðmar. Enn eru nokkrar búðir bak við þessa röð og standa
þær óreglulega. Alis sjer til 45 búða. Að lengd eru þær mis-
munandi. Flestar um 8 faðma, nokkrar 10 og 12, aftur aðrar
5 og 6, en fáeinar um 4 faðma á hvern veg. Dómhringur eða
þingfunda svið verður ekki sagt að sjáist með vissu. Má vera
að ferhyrnda sviðið umgirta, með ganginum tram úr, sem getið
er um í innstu röðinni, hafl verið haft til þess. En það getur líka
verið búð með einkennilegri lögun. i hraunsnefinu norðanmegin
við farvegsmynnið er raunar gamall hringur, nálægt 5 faðma í
þvermál. En hann sýnist minna mannvirki fyrir sitt leyti en
búðatóftirnar, og svo eru tvær litlar tóftir áfastar við hann.
Þykir mjer því vafasamt, að álfta þetta »dómhring«, það gæti
eins vel verið »gaddur«, eða kró til að gefa útigangsfje hey í í
harðindum; slíkir »gaddar« tíðkuðust meðan hús voru engin fyrir
útigangsfje, eða þá jötulaus, og er af því dregið orðatiltækið »að
gefa á gadd«. Hafi þessi hringur verið »gaddur«, gat hann verið
ætlaður því fje, sem gekk á norðurhrauninu fyrir norðan kvisl-
ina, sem farvegurinn er eftir. Annar hringur er fyrir sunnan
farveginn, spölkorn í norðaustur frá búðunum. Hann er meira
mannvirki; en eins og hann er nú, er hann auðsjáanlega með
seinni alda gerð. Þess vegna mældi jeg hann ekki. En síðan
hefir mjer dottið í hug, að þetta hafi dómhringurinn verið ef til
vill; en seinni menn hafi notað hann fyrir »gadd« handa fje sem
gengið hafi sunnan kvíslarinnar, hafi þvi hlaðið hann upp að
utan, er hann var orðinn niðursokkinn. Um þetta skal jeg samt
ekkert fuilyrða. Spölkorn suður frá þingstaðnum í sljettri dæld