Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1894, Qupperneq 23
23
undir Fauskheiðar-rananum, en þó laus frá honum úti í aurnum.
Steinfinnstaðir voru ekki á Þórsmörk, en þó fyrir innan landnám
Ásgerðar. Þar heitir nú Steinsholt og Stahhholt. Getur verið,
að nafnið Steinfinnstaðir hafi breyzt í Steinsholt. I norðanverðu
Steinsholti heitir Hoftorfa. Þar heflr því búið höfðingi, er heflr
haft hof á bæ sínum. Rúst sjest þar engin, sem ekki er von-
þar liggja nú skriðjöklar fram á lægstu hjalla, en jökulaur yfir
undirlendi öllu. Aður hefir þó verið þykkur jarðvegur yfir þessu
landi, og er enn eftir af honum dálitil torfa, sem liggur upp að
há-hömrum hjá upptökum Steinsholtsár.
Þar sem Lndn. nefnir »bjór ónuminn milli Krossár og Jöldu-
steins«, þá er aimennt talið víst, að þar sje átt við Goðaland. En
það getur þó ekki verið nema því að eins að Hvanná, sem skil-
ur Goðaland frá Stakkholti, hafi aldrei runnið saman við Krossá,
eins og hún gerir nú, heldur fylgt Stakkholts-brúninni, og komið
í fljótið hjá Jöldusteini, en Krossá hafi fylgt Þórsmerkur-brúninni
og komið i fljótið dálítið norðar. Þá hefði hin langa og mjóa
landræma milli ánna óneitanlega átt skilið að nef'nast bjór1. En
heldur er það samt óliklegt, þó það sje ekki óhugsandi, að hún
hefði haldið sjer saman hangandi svo langan veg milli slíkra
straumvatna, sem þær ár eru. En hafi þetta ekki verið svo, hafi
Hvanná runnið strax í Krossá líkt og nú, þá er tvennt til: ann-
aðhvort er ritvilla í Landn., og á að standa: »milli Krossár og
Hvannár« í staðinn fyrir: »milli Krossár og Jöldusteins«, eða
»bjórinn«, sem Jörundur fór eldi og lagði til hofs, á ekki skylt
við Goðaland — og satt að segja, gefur Lndn. ekkert tilefni til
að ætla, að það sje eitt og hið sama. Nú er svo að sjá af Njálu,
að alfaravegur hafi legið um Goðaland, og þá líka um Þórsmörk.
En nú er Þórsmörk svo ill yfirferðar, og hefir víst allt af verið,
að alfaravegur hefir þar naumast nokkurn tíma verið, nema því
að eins, að hann hafi legið á undirlendinu, sem að öllum likind-
um hefir verið vestan fram með henni. En þá gat hann heldur
ekki komið á Goðaland, nema tangi þess hafi náð vestur undir
fijót og verið sama sem »bjórinn«. Því »bjórinn« hefir hvort sem
er hlotið að liggja þar út frá, og er því nú auri hulinn, eins og
allt undirlendi á þessu svæði. Langanes heitir enn undirlendið
inn með Markarfljóti fyrir innan Stóru-Mörk inn að Jökulsá, sem
rennur í fljótið skammt frá Jöldusteini, og mun þó hafa runnið
enn nær honum áður. Nokkru innar en í miðju Langanesi heita
1) Bjór mun vera sama sem mjó landræma.