Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1904, Side 11
holti; hon átti land ofan til Víðilækjar ok upp til móts við Þuríði spákonu,
systur sína, er bjó í Gröf. Við hana er kenndr Þórunnarhylur í Þverá. Frá
henni eru Hamarbyggjar komnir«. Þórunnarholt heitir enn skógivaxið
holt við Þverá, nokkru fyrir innan Arnbjargarlæk. Við holtið heitir Þór-
unnarhylur í ánni. Skamt utar rennur lækur í ána; hann dregst saman
úr mýrakeidum fyrir vestan og ofan holtið, en fyrir austan Arnbjargar-
læk. Nú er honum ekkert nafn gefið. En eigi er um annan læk að
ræða, er verið geti Víðilækur. Kemur vel heim, að hann sé þetta. Enda
eru þar enn dálitlir víðirunnar. Engar sjást rústir í Þórunnarholti. En
vera má að þær hafi verið á fit við ána, sunnanundir holtinu; hún er nú
sumpart afbrotin, en sumpart hulin auri, — því áin ber aur undir sig og
hækkar upp við það. Litlu innar er hellir við ána. Segja munnmæli, að
Þórunn hafi búið í honum. En fremur tel eg það ólíklegt. Nú á dög-
um flæðir áin inn i hann í vatnavöxtum, og hefir borið þangað svo mik-
inn aur, að nú er ekki manngengt i hellinum. Og meðan árburður sá
var minni, hefir gólfið verið lægra, og því sama hætta fyrir ánni, þó hún
lægi þá lægra. Sennilegast þætti tnér, að Þórunn hefði raunar ekki búið
í holtinu, en að eins dvalið þar iðulega vegna veiðiskaparins í Þórunnar-
hyl. Hinn eiginlega bæ sinn get eg til að hún hafi haft á Hamri. Þar
bjuggu afkomendur hennar. Þar spölkorn ofar mun Þuríður systir henn-
ar hafa búið, í dal sem nú tilheyrir Hamri og heitir Hamarsdalur. Eftir
honum rennur lækur og á austurbakka hans er á einum stað rúst, sem
að vísu likist stekkjarrúst, en er þó fornleg, og þar vottar fyrir fleiri rúst-
um, enn fornlegri. Hygg eg að hér hafi verið bær Þuríðar, en ef til vill
stekkur frá Hamri verið bygður á rústum hans síðar. Götur, sem þar
liggja um, hafa einnig hjálpað til að eyðileggja fornar byggingarleifar.
Sá bær hefir verið réttnefndur Gr'ój. Veit eg engan, sem eins vel ber
nafn með rentu, því kalla má, að þar sjáist ekki nema upp í heiðan him-
ininn. Og þar eð Þuríður var »spákona«, og því að líkindum »forn í
skapi«, mun slíkur bústaður hafa átt vel við hana. En hvað sem því líð-
ur, þá kemur þetta vel heim við Lndn.: Þórunn átti land »upp til móts
við Þuríði«. Land Þuríðar var því fyrir ofan land Þórunnar og hefir
mest legið uppi á hálsinum. Þá er líka auðskilið, hvers vegna Eldgrímur
setti bæ sinn »á hálsinn upp«. Fénaður Þuríðar hefir gengið .vest-
ur á hálsinn í land Arnbjargar. Eldgrimur hefir viljað koma þeim á-
gangi af.
Brennistaðir heitir eyðibýli, sem er nálægt því mitt á milli Arnbjarg-
arlækjar og Hamars, nærri veginum. Þar hafa á sínum tima verið all-
mikil stórhýsi, en nú orðin óglögg. Þó má sjá, að miðgafl hefir skift
aðalhúsinu í tvo hluti, eigi minna en 4 fðm. langa, hvorn um sig. Bak
við austurhlutann sýnist vera önnur tóft samhliða. Vesturhlutinn er op-
2*