Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1904, Blaðsíða 31
Legsteinn.
Fyrir framan kirkjudyr á Leirá i Leirársveit í Borgarfjarðarsýslu
liggur legsteinn, sem er 2 ál. og 3 þuml. á lengd, og 1 alin og 6 þuml.
á breidd og 2 þuml. á þykkt. Letur er á steini þessum, en er víða orð-
ið mjög máð, og sumstaðar flagnað npp úr steininum og staíir horfnir,
en hefir í fyrstu verið stórt og greinilegt latínuletnr, vel höggið; á stein-
inum standa, að því er eg fæ næst komist, þessi orð:
HOC SACRUM
HELGÆ SIGURDI F. (d: filiae) ARNÆ
LEGIFERI NEPTI NATÆ A® 1663
DENATÆ A° 1693 D. (d: die) 2. Julii JONAS
THEODORI GISLÆ LEGIFERI
PRONEPOS CONJUGI DULCISSIMÆ
ET SIBI MÆSTUS POSUIT.
PSALM. 3. V. v. EGO DECUBUI ET DORMIVI
e t evigilavi.
[Jón Þórðarson, sonarsonarsonur Gísla lögmanns, setti, hryggur í
hug, legstein þenna sér og sinni ástkæru eiginkonu Helgu Sigurðardóttur,
sonardóttur Arna lögmanns, fæddri árið 1663, dáinni 2. dag júlímán. 1693.
Davíðssálmar III. 5 vers: Eg hef lagt mig fyrir og sofið og vaknað
af svefnij.
Sá Jón Þórðarson, sem hér er nefndur, bjó á Bakka í Leirársveit
(f 1719), afi hans var Hinrik sonur Gísla lögmanns (1606—1613) Þórð-
arsonar, en kona hans, Helga Sigurðardóttir, var sonardóttir Arna lög-
manns Oddssonar biskups Einarssonar.
Steinn þessi mun vera högginn erlendis, hann er með úthöggnum,
haglega gerðum, sólblómum (»Solsikker«) á öllum hornum, upphaflega var
hann eigi á þeim stað, sem hann er nú, heldur yfir leiði í kirkj ugarðinum,
en þegar að því var komið, að yfir hann greri, tók kirkjubóndinn á Leirá,
Þórður sál. Þorsteinsson, hann upp og setti hann fyrir framan kirkjudyrn-