Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Blaðsíða 26

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Blaðsíða 26
26 kemur ekki fyrir fyr en á 15. öld cg fyrst á víxl við eldri rithátt- inn Seilu. Seylurithátturinn stendur vafalaust í sambandi við norsku málskemmdina hér á landi, er tók að komast í algleyming á 15. öld, þá er norsku biskuparnir á Hólum skekktu og skrumskældu hér íslenzk bæjanöfn, og eru fingraför þeirra auðsæ á ýmsum skjölum frá þeim tímum. Annars er allt óvíst um, hvað Seila þýðir, og al- gerlega ósannað, að það standi í »nokkru sem helzt« sambandi við norska orðið »soyla«, þótt hinir vísu norsku biskupar hér hafi lík- lega haldið það, og sennilega fyrstir afbakað gamla ritháttinn. Höf. sárlangar auðsjáanlega til að hnekkja skýringu minni: Lambáblígsstaðir og lltiblígsstaðir, en treystir sér ekki almennilega til þess, enda mundi hann ekki bæta sig á því. Þó er honum ver við Utiblígsstaði, og er að reyna að snúa út úr því, hvort Utiblíg- ur = sá, er þarf aðallega að neyta sjónarinnar úti við, t. d. smali, eins og eg tek fram, þurfi ekki einnig að rýna í eitthvað inni. Ekki 8kal þvi neitað. En höf. hefur vist heyrt getið um fjærsýna menn, er sjá betur fjær sér en nær, betur úti en inni, en engum dettur víst í hug, að þeir séu samt sjónlausir inni(!). En smalar þurfa einmitt að beita sjóninni á löngum fjarlægðum, og það er því ekki hentugt, að þeir séu nærsýnir. Útiblígur er þvi mjög eðlilegt viðurnefni á manni, sem hefur óvenjulega skarpa sjón úti við eða á löngu færi. En svo kemur nú rúsinan í pylsuendanum hjá höf., þar sem hann skýrir frá því, að sér hafi verið sagt af kunnugum manni »að, »útiblik« væri vel skiljanlegt af útsýninni frá bænum«, og telur höf. »gott, að þetta væri nánar rannsakað og athugað«. Já, einmitt, það væri víst ágætt rannsóknarefni. Eg gat ekki annað en brosað, er eg las þessa tillögu hins málfróða höfundar og bæja- nafnaskýranda, og eg varð steinhissa. Hann ætti þó að þekkja þá algildu reglu, að endingin -staðir tengist nær aldrei við annað en mannanöfn eða viðurnefni1). En það hefur hiaupið allra snöggvast óþægileg renniloka fyrir þetta þekkingarhólf í heila hins lærða manns1). Það liggur við, að þetta sé öllu meiri skyssa, en Bola- hraun—Bolhraun, og mætti margt 3egja skemmtilegt í sambandi við þessa Útsýnarstaði eða Útsýnisstaði hans, og um allt það, er »blik- að« gæti á frá íslenzku bæjarhlaði eða frá bæjum að sjá, en eg vil hlífa höf. við þeirri upptalningu. Mig furðar stórlega, að hann skyldi svona hugsunarlaust gína við hinni ramvitlausu tilgátu þessa »kunn- 1) Alveg sérstaks eðlis eru nöfn eins og Hörðabólsstaðnr (í Laxdælu) Breiða- bólsstaður i Sökkólfsdal, Breiðabólsstaður í Fellshverfi (hvorttveggja í Landnámu) og ýms fleiri, sem kennd eru við ból (= bólstað) og ávallt með endingunni -staður (ekki: ■staðir) sem viðasthvar helzt óbreytt enn í dag, og mjög óviða hefur breytzt i -staðir. t
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.