Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Blaðsíða 67

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Blaðsíða 67
65 og hjer virðist eiga að lesa það, getur með engu móti tóknað dverga nje l helju og rímsins vegna verður hvorugt sett inn í þess stað að öðru óbreyttu í ljóðlínunni. Þá verður jarðarheitið í henni grunsam- legt. Það virðist ekki verða lesið á annan veg en aur. Ekki er það svo Bjálfsagt að jörðin heiti aur í helju eða að dvergar nefni hana svo, að ekki megi telja eins líklegt að hún sje nefnd þar öðru nafni. Eins og áður var minst á hefur Snorri Sturluson tekið upp 2 af vísunum í kvæði þessu, sem hann nefnir Alsvinnsmál ^), i bók sína Eddu, Skáldskaparmál, 20. og 30. vísuna; þær eru í útgáfu Finns Jónssonar, þeirri er kom út i K.-höfn 1900, 257. og 305. erindi (bls. 131 og 137), en ekki eins og í Sæmundar-Eddu. Sýnir þetta að Snorri hefur þekt kvæðið og má gera ráð fyrir að hann hafi notað það víðar í Skáldskaparmálum, tekið úr því heiti á ýmsu. Að hann hefur ekki tekið fleiri vísur úr kvæðinu, hefur komið til af þvi, eins og hann kemst að orði, að honum þykir »óskylt at hafa í skáld- skap« ýms skáldskapar-heiti, »nema áðr finni hann i verka höfuð- skálda þvílík heiti« (útg. F. J., bls. 128). Þau skáldskapar-heiti, sem hann telur upp, í sambandi við þessi ummæli, á himni, sólu og tungli, benda t. d. til, að hann hafi haft í huga 12., 16. og 14. visu Alvissmála. — Raunar eru þau heiti á himni og sólu, sem Snorri kann að hafa úr Alvissmálum, einnig í hinum fornu nafnaþulum, sem aukið hefur verið aftan við Skáldskaparmál, og Snorri hefur enn fleiri heiti, sem eru í þeim þulum, en ekki í Alvíssmálum, en óvíst er samt, að Snorri hafi sótt þau heiti í þessar þulur, eins lík- legt, að heitin sjeu sótt i þær úr Skáldskaparmálum, Alvíssmálum og öðrum fornum fræðum. Við lagfæriugar á Alvíssmálum er því sjálfsagt að taka tillit til Skáldskaparmála og þulnanna. — Hvað viðvíkur heitum á jörð, sem þessi, 10. vísa í Alvíssmálum er um, er nú þess að geta, að Snorri nefnir þau ein (útg. F. J., bls. 128—29), sem hann hefur fundið »i verka höfuðskálda« nokkurra, og setur hann vísnahelmingana, sem þau heiti eru í, en þau eru þessi: jörð, fold, grund, hauðr, land, láð, Hlöðyn, frón og Fjörgyn. Aur er ekki nefnt. — A öðrum stað í Skáldskaparmálum (útg. F. J., bls. 92) hefur Snorri ýmsar kenningar á jörð, og er þess ekki að vænta, að aur sje nefnt þar. — I þulunum eru (sömu útg., bls. 208—9) 2 vísur samansettar af jarðarheitum einum, alla 43, og er meiri furða að þar skuli ekki heldur vera nefnt heitið aur. Orðið aur í 6. 1. í 10. v. Alvíssmála fer að verða grunsamlegt, og einkum þar sem það getur ekki heldur samrímst orðunum dvergar nje í helju. Búast má helst við að línan hafi byrjað svo: Tcalla dvergar eða Jcalla ihelju 1) Alviss og Alsvinnr ern sömn merkingar. 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.