Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Blaðsíða 30

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Blaðsíða 30
30 þekktu ekki hina réttu mynd héldu, að nafnið væri dregið af manns- nafninu Torfi, sem beint lá við, og svo hefur verið farið að rita nafnið þannig, og eg hef grun um, að líkt sé varið um fleiri Torfa- staði, sem margir eru í landinu, að þeir séu einmitt afbökun úr Þorvarðsstaðir, sem nálega koma hvergi fyrir, þótt Þorvarður væri í fornöld almennara nafn en Torfi. En það er hvergi bein sönnun fyrir þessari breytingu nema um Torfastaði í Eljótshlíð. Eða hvað vill sá margvísi höf. gera við Þorvarðsstaði í Vilkinsmáldaga, sem ómótmælanlega er sama jörðin sem Torfastaðir? Hyggur hann að Þorvarðsstaðir sé vitleysa í þeim eldgamla máldaga, en Torfastaðir rétta nafnið? Sé svo, að hann meti þannig fornar heimildir, þá leiði eg alveg minn hest frá að rökræða þetta frekar við hann. Þá er höf. allstórorður um tillögu mína að taka upp nafnið Vélaugsstaði (í Hörgárdal, sem eg tel sennilegast að vera muni hið upphaflega nafn á þessum bæ. Hann kallar þetta »brot á allri skyn- semismeðferð nafna« og telur undarlegt, að eg skuli »dirfast að um- skapa nafnið«, því að það vissa sé, að það hefjist með f. Satt er það að vísu í öllum þeim afskræmismyndum, sem til eru af þvi, því að nafnið er auðsjáanlega herfilega afbakað. En höf. gætir þess ekki, að hann hefur í skýringum sínum (í Safni IV, 440) komizt að þeirri niðurstöðu, að Félaugs- muni vera rétta nafnið, og kemur þó sú mynd af því hvergi fyrir, en af því að hann rígheldur svo í f-ið, dettur honum ekki í hug önnur betri skýring, þótt segja megi að hún berist upp í hendurnar á manni, nfl. Vélaugs-, því að höf. er ekki unnt að neita því, að framburður á samstöfunni vé og fé er svo nauðalíkur, að ekkert var eðlilegra, en að menn, sem að eins þekktu nafnið í framburði héldu, að jörðin væri kennd við »fé«, og svo verið farið að rita það þannig, af því að menn hafa ekki þekkt orðið »vé«. Þetta liggur mjög beint við, hvað sem höf. segir um það, að önnur dæmi þekkist ekki, að v í upphafi orðs hafi orðið f. Það er alveg sama, eins og þegar hann fordæmir breytinguna á Þorvastaðir í Torfastaðir af því, að þ geti ekki orðið t. Hann er auðsjáanlega mjög skilningslítill á það, hver áhrif framburðurinn getur haft á rithátt nafnanna, og að ströngum málfræðireglum er ekki fylgt i þeim afbökunum, þá er almenningur skilur ekki nafnið, eins og þarna hefur orðið með »vé«, er orðið hefur að »fé«, fyrst í framburði og svo í riti, og er þýðingarlaust fyrir höf. að neita þessu, hversu opt og freklega, sem hann gerir það. Eg tel mig því hafa haft fulla heimild til að benda á fallegt nafn, sem sterlcar likur eru fyrir, að sé hið rétta heiti þessarar jarðar, í stað hinna mörgu ónefna: Féloks-, Fjalhöggs- eða Féeggs-. Hefði höf. heldur viljað, að eitthvert
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.