Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Síða 36
36
yrði önnur. Þessi staður í Fljótsdælu gefur okkur ýmislegt að at-
huga. Það fyrst, að þá er þingið fiutt frá Þing-Múla og undir Kiðja-
fell, það annað, að það heíir vafalaust verið fjórðungsþing, því orð í
Fljótsdælu benda í þessa átt. Þegar Þórdís todda sendi húskarl sinn
upp á Kiðjafellsþing nóttina eftir að Helgi fór, þá segir að maður-
inn hafi riðið sem af tók upp undir Kiðjafell og alt á Þingvöll, en
Þingvellir eða -völlur held eg ekki hafi verið kallaðir, nema þar
sem aðalþing voru1). Hið þriðja er það, að kvöldið eftir að Helgi
fór um raorguninn, kom Bjarni bróðir Þórdísar og gisti í Mjóvanesi
með 80 menn. Þórdís vissi fullvel um erindið og Bjarni vissi um
ástæðurnar í Mjóvanesi, en eins og sagan sýnir, þá vafðist Þórdís
fyrir Bjarna, en vann sjer með því orðstír, sem seint mun firn-
ast. Hvaðan kom Bjarni og hvert var hann að fara? Auðvitað
kom hann að heiman og var að hnýsast eftir Gunnari í Mjóvanesi,
af því hann vissi, að svona stóð sjerstaklega á, að Helgi mágur
hans varð sem einn af höfðingjum Austfirðinga samkvæmt landslög-
um að fara á þingið og helga það, eða setja sem við mundum nú
segja.
En Bjarni hafði annað erindi, hann var líka að fara til þings.
Sögurnar eða sagan getur þess ekki, en eg veit það og við getum
öll vitað að svo hefir verið; við getum lesið það milli línanna. Hann
myndi varla fara að ríða norðan frá Hofi í Vopnafirði og upp í
Mjóvanes með 80 menn tóma erindisleysu, ef hann hefði ekki átt
annað erindi austur á hjerað. Auðvitað var hann að fara á þing,
annaðhvort Krakalækjarþing eða Lambanessþing, hefir brugðið sjer
þetta um leið, en ekki viljað beita systur sína harðræðum. Mesta
meinið við frásögnina um þennan atburð er það, eins og víðast í
íslendingasögum, að hann er ekki árfærður. Við getum hugsað okk-
ur að eins, að þetta muni hafa gerst nál. 995, því Helgi Droplaugar-
son er veginn 998 og þá líklega um vorið kaupir Helgi Ásbjarnar-
son landið að Eiðum, og er veginn þar 1005. Eitthvað uálægt þessu
getum við hugsað okkur atburðina hafa gengið. Fljótsdæla segir svo
frá þeim atburði er Helgi Ásbjarnarson er veginn: »Þann dag er
þeir Grimur voru við lækinn, riðu menn brott af Lambanessþingi,
og fór margt manna til Eiða með Helga Ásbjarnarsyni.« Þetta er í
eina skiftið, sem Lambanessþing er nefnt í Fljótsdælu, og þar er það
1) Af orðinu »Þingvöllur« verður alls ekki sjeð hvers konar þing er hjer háð,
en enginn vafi er á þvi að hjer er um vorþing að ræða, vorþing i Kiðjafellsþingi
(= Múlaþingi).