Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Síða 59
57
ok jörðuðu þar í höfninni allra manna lik þeirra er þar höfðu fallit
á skipi ok á landi, því þeir nentu ekki til kirkju at færalíkin; því
at í þenna tíma vóru engar kirkjur í nánd höfninni*. Þessi bardagi
er talinn hafa verið um alþingistímann sumarið 1024.
í Harðbaks-landi, að norðanverðu við bæinn og um 10 mínátna
gang frá honum, á Hraunhafnartanga miðjum, eru sýndar dysjar
tvær. Er önnur nefnd Þorgeirsdys. Það er grjóthaugur mikill og há
varða á. — Sjá meðf. mynd eftir Heinrich Erkes (frá 1909?). —
Hin dysin er nefnd Gautsdys; hún er skamt frá Þorgeirs-dys, er
lág og grasi vaxin. Umhverfls hana er einfaldur steinahringur.
— Hraunhöfn er sögð litil, en ágæt höfn. Ekki kom jeg þangað, en
lýsing dysjanna er eftir sögusögn kunnugs manns og kemur heim
við ljósmyndina af Þorgeirs-dys.
Fornar tóttir í Freysnesi.
31. VII. 1915.
í Árb. 1896, bls. 24—28, er grein eftir Jón Jónsson lækni um
svonefndar »Goðatættur« og fleiri tóttir í Freysnesi og eru myndir
af þeim með. — Freysnes er smánes, sem gengur út í Lagarfljót að
norðanverðu, gegnt Egilsstöðum.
Fyrir norðan tóttir þær, er Jón lýsir og sýnir á afstöðuupp-
drættinum, og lítið eitt vestar en þær, er sjerstök, jafnfornleg tótt,
um 16 m. að lengd og um 8 m. að breidd, á yztu veggjabrúnir að
sjá. Hún hefur nær því sömu stefnu sem hinar tóttirnar. Dyr sjást
hvergi glögglega. — Jón læknir álítur að flestar tóttirnar sjeu þing-
búðatóttir og segir sjer hafi komið til hugar, hvort Lambanesþing
hafi verið hjer, og nesið þá heitið Lambanes. Mjer leizt svo á þess-
ar tóttir, að þær væru ekki þingbúðatóttir, en bær hygg jeg hafi
kunnað að vera hjer i fyrndinni og sýnist líklegt, að tóttirnar sje
eftir bæjarhús og útihús. Sú þeirra, sem kölluð er »Goðatættur«,
ætla jeg, eins og Jón læknir, að kunni að vera eftir goðahús (hof),
svo sem og nafn hennar bendir til. — Um Lambanesþing sjá hjer
að framan, bls. 34—41.
Forndysjar (?) á Grafarbakka í Hrunamannahreppi.
1. IX. 1916.
í Grafarbakka-landi, fyrir austan túnið, eru rjett við vagnbraut-
ina á milli Grafarbakka og smjörbúsins þar fyrir austan, við Áslæk,
tveir smábalar eða þúfur á melhoiti. Heitir önnur þúfan Hrafnkels-