Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Page 61
Nýfundinn rúnasteinn i Flatey á Skjálfanda.
Sjera Ásmundur prófastur Gíslaaon á Hálai í Fnjóakadal akýrði
mjer frá því 3. VIII. 1912 að gamall legateinn með rúna-áletrun
hefði þá fyrir skömmu komið upp úr kirkjugarðinum i Flatey á
Skjálfanda. Prófaaturinn lýati nokkuð fyrir mjer steininum og sýndi
mjer afrit af rúnunum. Gátum við þó ekki ráðið áletrunina eftir
þeirri afskrift, enda höfðu tvær rúnir misritast og 1 fallið úr í af-
skriftinni, eftir því sem síðar kom í Ijós er afskriftin var borin
saman við áletranina sjálfa.
Eftir nokkrar tilraunir til að fá stein þennan sendan til Þjóð-
minjasafnsins tókst það loks í hitt ið fyrra sumar og kom steinninn
tii safnsins 22. júní 1922 og er með tölumerkinu 8596 í Þjóðmenn-
ingarsafninu.
Steinninn er úr grágrýti, fremur hörðu og þjettu, smágerðu og
ljósgráu í sárið. Hann er flatur og hellumyndaður, en ekki reglulega
eða vel lagaður, enda virðist hann ekkert hafa verið höggvinn til
eða lagaður af mannahöndum. Hann er lang-breiðastur i hægri end-
ann, um 58 cm. Lengdin er mest um 120 cm. og þyktin er um 10
cm., en er misjöfn. Hann er fremur jafn að ofan, þeim megin, sem
áletrunin heflr verið höggvin á. Hann virðist sorflnn nokkuð af sjó
og hefur sennilega verið tekinn úr flæðarmáli. Lögun hans og áletr-
unin sjest best á meðfylgjandi mynd, sem er gerð eftir ljósmynd.
Er hún var tekin var borin krít í rúnirnar, svo að þær kæmu betur
í ljós á myndinni. Þær eru, eins og sjá má, i 2 línum og er kross
afturundan efri línunni; krossinn er með fótum, litlum þríhyrning-
um á öllum endum, og er sem aðalálman sje með broddi niður úr
og þó svo sem fótur á honum neðst; hún er 14,5+4 cm. Rúnirnar
eru fremur óvandlega höggnar og misháar, 5—10 cm. að hæð, og
eru þær þannig: t ) R t Pi I T 1 k <i
á k&i«rr<Nk n
Þursarnir eru öfugir; *j als staðar svo sem höggvinn ofan í upphöggv-