Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Page 82

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1924, Page 82
80 Annar eptirmáli. Eg þarf ekki að svara dr. F. J. miklu út af þessum eptirmála hans, því að hann hefur runnið svo gersamlega af hólmi, að hann gerir alls enga tilraun til að hnekkja þvi, er eg rak ofan i hann með ljósum og skýrum rökum, enda hefur hann réttilega séð, að það væri honum ofraun. En í þess stað lætur hann taumlausa reiði hlaupa með sig i gönur, því að honum hefur sárnað svo grimmilega, hversu vendilega hann var alstaðar kveðinn í kútinn með fjarstæður sínar og staðhæfingar. Hann talar um »fólsleg atyrðif, er eg hafi haft um hann, en það mundi honum veita erfitt að sanna, því að þau finn- ast hvergi í svari mínu, en á stöku stað áþéttisorð, fullkomlega rök- studd og ávallt í sambandi við einhverjar lokleysur hans. Eg hef meira að segja víða hlíft honum, frekar en ástæða var til. Eg skal taka t. d. hið fáránlega málfræðilega axarskapt hans um Bolahraun—Bolhraun. Það var sannarlega freistandi að kalla það »bolalegt», en eg vildi ekki líkja doktornum við naut, þótt honum yrði þessi skyssa, en þrístrykaðan gálga hefði hann fengið í þessa skýringu sína hefði hann setið á skólabekknum. En engrar afsökunar bið eg á því, þótt eg minntist á málfræðislega »gorgeirinn« hjá honum, þvi að hann veður sannarlega uppi, þótt doktornum skjátlist opt hraparlega, ein- mitt á því sviði, þar sem hann œtti að vera sterkastur á svellinu. Eg tek mér því ekki nærri þetta endurnýjaða þvogl hans um mál- fræðisbrest hjá mér, því að hann hefur sýnt, að honum ferst ekki að tala digurbarkalega um þau efni. Hann er ekki svo óskeikull sjálfur. Annars þykir mér hálfgaman að dómsvottorði hans um bæja- nafnaritgerð mína, því að þar slær hann í reiði sinni sjálfan sig á munninn. Sé ritgerð mín svo einskisnýt, sem hann segir, hvernig mundu þá óhlutdrægir menn dæma um hina löngu Safnsritgerð hans? Eg get fullvissað hann um, að hún fengi miklu verri allsherjareink- unn, en hann gefur mér, því að það má hann reiða sig á, að þeir munu verða miklu fleiri þeirra manna, er þessa hluti rannsaka síðar, er leita munu fræðslu í ritgerð minni og leggja hana til grundvallar, heldur en hinir, sem byggja nokkurn skapaðan hlut á ritgerð dr. F. J., Bem vægast talað er lítið annað en lengdin og þynnkan. Annars væri það þarft verk, þótt leiðinlegt væri, að taka þá ritgerð hans til rækilegrar athugunar, og kryfja hana duglega til mergjar, ef merg væri að finna, og gæti þá svo farið, að höfundurinn lækn- aðist af þeirri hlægilegu ímyndunarveiki, að hann væri sérstaklega kallaður til að fást við slíkar rannsóknir, þvi að þá fyrst kæmi það

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.