Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Blaðsíða 10
10
4. maður frá Helga magra (Helgi, f. um 845 — Ingunn, f. um 870 —
Þórir, f. um 900 — Porvaldur, f. um 940), Porkatla, dóttir Otkötlu,
4. maður frá Þorbirni laxakarli (Porbjörn — Þorgils — Otkatla —
Þorkatla), Ásgeir yngri 4. maður frá Auðuni skökli og Ingimundi
gamla (Ingimundur, f. um 850, — Jórunn, f. um 885 — Auðun, f. um
920, — Ásgeir, f. um 950). Kynni Þorkatla að hafa orðið kona Þor-
valds króks fyrst, en er hann var fallinn, í bardaganum á Hrísateigi,
sem varð um 990, kynni hún að hafa gifzt Ásgeiri yngra og átt skömmu
síðar með honum Þorvald á Ásgeirsá. Eins og bent var á hjer áður,
hefir Ketill, sonur Þorvalds króks, sennilega verið sonur Þorkötlu,
og Þorvaldur er sonur Þorkötlu. Ekki er ólíklegt, að nafnið Ketill á
syni Þorkötlu úr Þjórsárdal hafi verið gefið honum með tilliti til þess,
að hún var Otketils dóttir, og ekki væri ólíklegt, að nafnið Þorvaldur
á syni Þorkötlu Otkötludóttur hefði verið gefið houm, hefði hún áður
verið ekkja Þorvalds króks. — Dalla, dóttir hennar, Ijet son sinn einn
heita Þorvald. Hann »bjó í Hraungerði; mikill höfðingi«l).
I Fljótsdælasögu (hinni meiri, sem svo hefir verið nefnd) er sagt,
að kona Glúms á Glúmsstöðum hafi heitið Þuríður og verið Há-
mundardóttir, »kynjuð sunnan úr Þjórsárdal«. Oddbjörg hjet dóttir
þeirra, og segir sagan, að Ásbjörn á Aðalbóli, sonur Hrafnkels Freys-
goða, hafi kvænzt henni og átt með henni Helga, er lengi bjó í
Mjóanesi og kunfiur er af Droplaugarsonasögu. Fljótsdælasaga er nú
talin skröksaga frá 16. öfd, og er því ekki takandi mark á þessu.
Hvorki Glúmur nje þær mæðgur eru nefndar í öðrum ritum, en þeir
feðgar Hrafnkell, Ásbjörn og Helgi eru nefndir í Landnámabókunum,
Vopnfirðingasögu, Droplaugarsonasögu, Hrafnkelssögu og víðar. —
í Hrafnkelssögu er móðir Ásbjarnar, kona Hrafnkels, nefnd Oddbjörg
(Skjöldólfsdóttir úr Faxárdal). En Hrafnkelssaga er nú einnig talin
skröksaga. Er ekkert, sem styður þessa frásögn Fljótsdælasögu, og
verður ekki heldur ráðið af nöfnunum, að neitt muni hæft í lienni.
Frægastur allra hinna fornu Þjórsdæla var Hjalti Skeggjason.
Hann er sagður vera í eða úr Þjórsárdal í ýmsum ágætum fornritum,
íslendingabók, Landnámabókunum, Kristnisögu, Njálssögu, Sturlunga-
sögu og Kristniþætti í Ólafssögu Tryggvasonar í Flateyjarbók. Hvergi
er greint í fornum ritum frá því á nokkurn hátt, hvar hann hafi átt
heima í Þjórsárdal, nje heldur, að foreldrar hans eða forfeður hafi átt
þar nokkurs staðar heima. Hann var skyldur Þjórsdælum, eftir því,
sem segir í Landnámabókunum; Kolgríma Beinisdóttir, arnrna hans,
1) Bisk. s., I., bls. 61. — En Þorvaldur Gizurarson í Hruná lijet eftir móöur-
föður sínum, Þorvaldi auðga Guðmundarsyni.