Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Page 11
11
kona Þorgeirs, föður Skeggja, var sonarsonardóttir Jórunnar, systur
Steinólfs (»hins lága«), föður Unu, konu Þorbjarnar laxakarls. Hjet
faðir Beinis Már, og nam hann ásamt Bröndólfi, bróður sínum, Hruna-
mannahrepp. Peir voru synir Nadd-Odds víkings, sem fann Island og
nefndi Snæland, og Jórunnar, Ölvisdóttur barnakarls. Þorgeir Eilífsson,
maður Kolgrímu, afi Hjalta, var einnig skyldur Þjórsdælum; Halldóra,
móðir hans, var dóttir Steinmóðar Konálssoar, Steinmóðarsonar, bróð-
ur þeirra Steinólfs (»lága«) og Jórunnar. — En Eilífr, faðir Þorgeirs
og langafi Hjalta var sonur Ketils einhenda, Auðunarsonar jounnkárs.
Ketill nanr landið austan við Þjórsá, á móts við Þjórsárdalinn, »Rang-
árvöllu ina ýtri«, og bjó »at Á«, þ. e. Árbæ. — Ekki er kunnugt,
að þessi forfaðir Hjalta, Steinmóður, eða Steinófur, bróðir hans og
tengdafaðir Þorbjarnar laxakarls, hafi fengið neitt af landi því, er hann
nam, eða sezt að í Þjórsárdal. Þó er vert að geta þess í þessu sam-
bandi, að eyðibýlið Steinastaðir á að sögn að hafa heitið Steinólfs-
staðir í öndverðu, en kennt þá við mann Þuríðar Arngeirsdóttur
norðan frá Melrakkasljettu/) og virðast þau hjón hafa verið síðar uppi
en þeir bræðurnir, Steinólfur (lági) og Steinmóður, forfaðir Hjalta
Skeggjasonar. Uni móður Hjalta segir í Ólafs sögu Tryggvasonar,1 2)
að hún hafi verið Þorgerður, »dóttir Hlífar, dóttur Torf-Einars jarls,
sonar Rögnvalds Mæra jarls.«3) Kunna foreldrar Hjalta að hafa átt
heima í Þjórsárdal. Höfundur Kristnisögu segir berum orðum, að
Hjalti hafi farið utan, sumarið fyrir kristnitöku, »á því skipi, er hann
hafði gera látit heima þar í Þjórsárdal, ok færði eptir Rangá inni
vestri til sjóvar skipit«. Þessi frásögn bendir á það, að minnsta kosti,
að höfundur Kristnisögu hafi litið svo á, að Hjalti hafi átt þar heima,
sem skammt var til Rangár vestri. Kemur þá ekki annar bær í Þjórs-
árdal til mála en Sámsstaðir. Sá bær hefir vafalaust átt land að Þjórsá,
suður og austur um Búrfell, og eru aðeins 600 m. á milli ánna þar,
sem skemmst er. En þótt menn ímyndi sjer, að skipið hafi verið flutt
upp eftir Þjórsá á ísi allt þangað, er svo skammt verður yfir að Rangá,
þá getur það aldrei talizt líklegt, sökum þriggja fossa í Þjórsá á þeim
kafla hennar. Enda hefir sú sögn lifað í niunnmælum, að Hjalti hafi
fært skipið milli ánna fyrir neðan Þjófafoss, en þar er miklu lengra á
milli þeirra; fer vegarlengdin eftir því, hvar það var dregið á land
austan Þjórsár. Nú er þarna blásið land, en var áður skógi vaxið.
1) Landnámabækurnar, Árb. Fornlfjel. 1884 —85, bls. 51, og Skírnir 1931,
bls. 159-60.
2) Flateyjarbók, I., bis. 428; Fornm. s., II., bls. 210.
3) Steinn Dofri ættfræðingur álítur, að Þorgerður liafi verið systir Gunnars
Hlífarsonar og þau hafi verið börn Rauðs Kjallakssonar, Kjarvalssonar Irakonungs.