Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Blaðsíða 28
26
víg hans afturgöngu Klaufa, því að saxið Atlanautur, sern Klaufi hafði
átt, stóð í gegnum Ljótólf. Síðan bætir sagan við: »Ljótólfr var færðr
suðr ok ofan á völlinn«. (Svarfd., kap. 32).
Þessi »óþokkadæl« er vafalaust laut sú skammt fyrir sunnan bæ-
inn á Hofi, efst á vellinum, sem nú er kölluð Oþokkalaut. Þegar Oísli
Jónsson, sem enn býr á Hofi, fór að slétta suðurvöllinn, var það eitt
sinn, að jarðabótamenn komu ofan á beinagrind af manni, einmitt
suður og ofan frá enda þessarar lautar. Virtist þeim sem þúfa í stærra
lagi væri yfir beinunum. Lítið rannsökuðu þeir annars staðinn, en
fullyrtu þó, að engir hlutir hefðu verið hjá beinagrindinni. Því miður
var Gísli Jónsson ekki heima, þegar þetta gerðist, og þegar hann kom
heim, höfðu verkamenn lokið við sléttuna og gátu ekki aftur fundið
beinin, enda sennilega ekki Ieitað mikið. Frá þessu hefir Gísli Jónsson
sagt mér, mjög skilorður maður.
Sama er að segja um þennan fund og beinin í Blakksgerði, að
honum ber merkilega vel saman við frásögn Svarfdælu.
Beinafundur á Jarðbrú.
Þegar Karl hinn rauði hefir misþyrmt Skíða með því að draga
hann aftan í hesti sínum út völlinn á Hofi fyrir ofan Skorðumýri,
sjá þeir, að þrír tugir manna ríða utan að bænum á Hofi, og var
þar kominn Ljótólfur goði. Karl fór þá undan yfir ána, en Ljótólfur
og hans menn veittu honum eftirför. Svo segir sagan: »Þeir Karl
búask nú við á hólnum gegnt Grundarhúsum«. Varð þar bardagi.
jSvarfd., kap. 24).
Hvar er nú þessi hóll, sem höfundur Svarfdælu talar þarna um
af svo miklum kunnugleik, að honum finnst ekki geta farið milli
mála, hvar hann sé? Gegnt bænum á Grund er ekki einn einasti
hóll, enda eru það »Grundarhús«, en ekki sjálfur bærinn, sem miðað
er við. Útihús frá höfuðbýlinu Grund gátu verið svo að segja hvar
sem er, þó að það sé raunar athugavert, að það eru þau Grundar-
hús, sem stóðu á dögum söguritarans, sem hér um ræðir. Sennilegt
er, að höfundur hugsi sér, að þeir Karl fari yfir ána á Þingavaði, sem
hann getur um seinna, (kap. 28) og vafalaust hefir verið þar, sem nú
heitir Torfhólavað eða Grafarvað, milli Hofs og Grafar. Auðvitað
verður Karli að leita sér að vígi, og slíkt er ekki að finna fyrr en
vestan við mýraflatneskjur þær, sem Grundarmýrar heita, uppi í börð-
unum, þar sem brekkurnar að vestan byrja. Frá Torfhólavaði er
stytzta leiðin í sæmilegt vígi að hól _þeim, sem bærinn Jarðbrú stend-
ur á nú. Það er í rauninni eini hóllinn, sem því nafni getur kallazt,
fyrr en langt uppi í brekkum, ofan við alla bæi. Það væri því af