Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Síða 32

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Síða 32
30 allan þann fróðleik, sem enn lifði um hina fornu Svarfdæli, og spinna úr honum einn söguþráð, að svo miklu leyti sem það var hægt. Ef hann þekkti sagnir, seni ekki tvinnuðust þræði sögunnar, hirti hann ekki um eða gat ekki samræmt þær sögunni, en vildi hins vegar ekki sleppa þeim, og þess vegna er það, að sagan er svo sundurlaus og næstum því annálskennd á köflum. Pessar sagnir uin atburði, sem höf. hyggur hafa átt sér stað, en getur ekki tengt söguþræðinum, koma eins og óboðnir gestir inn í frásögnina. Til dæmis má nefna söguna um skipssmíð þeirra Ljótólfs og Karls rauða (Svarfd., kap. 15). í greininni »Dalvík-Fundet«, (Aarb. for nord. Oldkh. og Hist. 1910), segja þeir Finnur Jónsson og Daniel Bruun, að þessi saga sé »vist- nok kun digt« og ráða það sennilega af því, að það er í sjálfu sér ósennilegt, að skip liafi verið smíðað úr íslenzkum viði, þó að það beri að muna, að »skip« gat vel verið lítill bátur, og svo hinu, hve tilefnislaust það er, að segja söguna þarna. En einmitt þetta atriði sannar miklu fremur, að bak við söguna búi gömul arfsögn. Og sú arfsögn hefir lifað vegna örnefnanna Eikibrekka, Eikisík og Skorðu- mýrr. Höf. hefir þekkt þessi örnefni og söguna, sem þeim fylgdi, og því ekki þótzt geta látið hana liggja í þagnargildi, þótt hann vissi varla, hvernig hún kom óeirðunum við. Sama er að segja um söguna um Geira í Holti. Höf. veit ekkert um Geirdísi í Holti og Geira, son hennar, né hvers vegna Karl rauði á sökótt við hann, en hann þekkti mæta vel staðinn Geiravelli og það, sem sagt var um uppruna þess nafns, og því tekur hann þetta með í sögu sinni, alveg samhengislaust við aðra kafla hennar. (Svarfd., kap. 25). Raunar getur verið, að Geiri og Geirdís hafi verið kynnt í því, sem nú er glatað úr 10. kap., en engu að síður er þetta örnefnissaga. Merkar sagnir, sem ætla mætti, að freistandi liefði verið að nota sem hlekki í skáldlegri atburðakeðju, eru sagðar án þess að standa í lífrænu sambandi við söguna. Einkum á þetta við urn orð þau, sem Yngveldur fögurkinn lætur falla við fæðing þeirra Ásgeirssona frá Brekku, bræðra sinna. Tilgangurinn er þarna enginn annar en sá, að hirða þessa alþekktu setning, sem höfð var eftir einni af söguper- sónunum, án þess að hún í raun og veru komi sögunni hætis hót við. (Svarfd., kap. 14). Enn fleiri dæmi mætti nefna, þar sem höf. greinir frá atburðum, sem ekki falla inn í þráð sögnnnar eða koma jafnvel í bága við meg- inatriði hennar, eins og það, að óvinirnir Karl rauði og Ljótólfur eru sagðir leggja með sér félag um fiskveiðar í ánni. Má sjá á orðalagi sögunnar, að höf. furðar sjálfan á þessu, en hann tekur það samt með. (Svarfd., kap. 13).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.