Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Page 39

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Page 39
37 hef jeg nefnt tvo áður og byggt á, en þar sem segir í Sturlungu (I., bls. 117): »Ok einn dag, er menn como flestir til lavgbergs, þa gecc Sturla fram a uirkit firir bud sina. . . . Hann qvað nv sva at orði« o. s. frv., þá virðist hjer eðlilegra að skoða þetta: »a uirkit firir bud sina«, sem rjett ritað, — sje úr fallið hjá öðrum afritaranum (Króksfjarðarbók) fremur en líklegt sje, að því hafi verið skotið inn i hjá hinurn (Reykjarfjarðarbók) eins og M. Þ. getur til, því þótt það væri ólíklegt, að Sturla gengi fram á virki sitt til þess að ávarpa menn á lögbergi, ef lögberg hefði verið þar, sem M. Þ. heldur, að jaað hafi verið, þá sýnir það aðeins, að lögberg hefur ekki verið þar í það sinn; en ef það aptur á móti hefur verið þar, sem jeg tel víst, að það hafi verið, aðeins 4—5 faðma frá búðunum í skarðinu, Snorrabúð og Hlaðbúð, og nokkru lægra, þá er ekki neitt undarlegt við það, þótt Sturla ávarpaði þá, sem á lögbergi voru, frá virki sínu, Joar gat hann talað með meiri þunga við þá, er hann stóð lítið eitt frá þeim og nokkru hærra. En það er enn einn staður í Sturlungu, sem ekki má ganga fram hjá, þótt M. Þ. ekki geti hans í ritgerð sinni um þingstaðinn forna í Árb. Fornl.fjel. 1921—22, en hann kemur augljóslega í bága við þá skoðun, að lögberg hafi á Sturlungatímanum verið á gjárbarminum eystri, þar sem nú er talið, að það hafi verið. Þar segir svo: »Þinglavsna-dag reið Snori til lavgbergz, sem hann var vanr, adr hann reið af þinge. Sighvatr var at logbergi. Þorvaldr spurþi Sighvat, hvat þeir bræðr skylldv tala vm Snorrvnga goðorð« (I., bls. 392). Það er augljóst, að þeir Snorri og Þorvaldur, sem var með honum, gátu ekki riðið til lögbergs, hafi það verið uppi á gjárbarminum, eða nær því en að hallinum þar fyrir neðan, en þaðan er mjög ólíklegt, að Þorvaldur hafi farið að hrópa upp til Sighvats, sem var »at logbergi,« og þá 22 faðma í burtu frá þeim, um einkamál þeirra bræðra, Snorra og Sighvats; — en liafi lögberg verið þar, sem jeg hef haldið fram, er þetta alt mjög eðlilegt, því Snorri og Þorvaldur ríða að klettinum eða klöppinni, sem nefnd var »Lögberg«, og taka tal við Sighvat, sem þar er staddur, sennilega þó af hestbaki, enda ekki annars getið. Jeg fæ því ekki betur sjeð, en að lögberg liafi, að minnsta kosti um og eftir 1200 verið á þessuin stað, þar sem búðir þeirra Benedikts Þorsteinssonar og Þorleifs Nikulássonar síðar stóðu og merktar eru sem 14. og 15. búð á uppdrætti þeim, er fylgir ritgjöð M. Þ. í Árb. Fornl. fjel. 1921—22, enda mun þar hafa verið mann- virki nokkurt áður þær búðir voru reistar, jarðvegur fluttur þangað og klöppin jöfnuð með honum. Þessa athugasemd mína rita jeg í þeirri von, að fræðimenn vorir taki þetta mál til nýrrar yfirvegunar, því mjer finnst það ömurlegt, að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.