Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Blaðsíða 51
49
honum, sízt nokkuð að ráði í mannfjölda, og hann er svo lítill um
sig að ofan, að erfitt hefði orðið að koma þar fyrir sætum handa
þeim, er ætíð skyldu vera viðstaddir á lögbergi, er lögsögumaður
sagði þar upp lög, 12 lögrjettumenn úr fjórðungi hverjum, eða 2 aðrir
menn fyrir hvern þeirra, sem ekki hafði tóm til að vera við, auk
byskupanna, lögsögumannsins sjálfs og þeirra manna, »er hann hefir
einnefnda til þess at sitja at lögbergi með sér« (sjá Qrágás, konungs-
bók 117). — Sjera Guðmundur heldur, að þessi þúst, eða klöpp, er
hann kallar svo, »sje eini staðurinn, sem um« geti »verið að ræða,
þegar tekið er tillit til alls þess, sem sögur vorar segja um lögberg«.
Þá ræðir sjera Guðmundur uin frásögnina í Sturlungasögu, er
Hvamms-Sturla gekk fram, á alþingi 1181, og skaut málaferlum sínum
við Pál prest Sölvason í Reykholti til gerðar Jóns Loftssonar. Gerðist
þetta »einn dag, er menn komu flestir til lögbergs«. Voru þeir þar
viðstaddir báðir, Brandur byskup Sæmundsson og Jón Loftsson, er
fylgdu Páli presti að málum, og svöruðu þeir Sturlu þegar í stað.
»Síðan gengu menn frá lögbergi og heim til búða«. Pykir mjer aug-
ljóst mál, að Sturla hafi hiotið að vera einnig sjálfur viðstaddur að
lögbergi í þessu máli sínu, svo sem það nú var upp komið í fyrstu
og svo sem því var kornið, er á þing kom. Hefði það verið býsna
ótilhlýðilegt og að öllu leyti óeðlilegt, hefði Sturla flutt tölu sína af
virkinu fyrir búð sinni í stað þess að ganga til lögbergs, þar setn
hinir höfðingjarnir og fjölmennið var. Hef jeg rætt um þetta áður í
Árb. 1921—22, bls. 90—91, og finn enga ástæðu til að líta á þetta
atriði öðruvís nú en þá.
Loks' nefnir sjera Guðmundur eina frásögn í Sturlungasögu, þar
sem þess er getið, að Snorri Sturluson hafi á þinglausnadag 1228
riðið »til lögbergs, sem hann var vanr, áðr hann reið af þingi«. Álítur
sjera Guðmundur það augljóst, að Snorri hafi ekki getað »riðið til
lögbergs, hafi það verið uppi á gjárbarminum« o. s. frv. — Samt telur
hann sig hafa sannað, að Snorri hafi 12 árum áður látið gera þarna
á sama stað búð handa sjer, Grýlu. Ærið hefði það verið erfitt og
ólíklegt, að hann hefði látið gera þar búð, þótt það hefði ekki bætzt
við, að honum hefði verið ófært að henni ríðandi. — Petta er svo
ókunnuglega sagt, að furðu gegnir um mann, sem ætla mætti, að væri
mjög kunnugur á þessum slóðum. Eins og allir sjá, sem virða fyrir
sjer lögberg, er mjög auðvelt að ríða alveg að áhleðslunni á lögbergi,
og um hana alla nú, úr hvoru skarðinu, sem vera skyldi, »Hamra-
skarði« eða »Kross-skarði«, þ. e. hjá Snorrabúð eða hjá búð Guð-
mundar Ketilssonar. í annan stað er þess að gæta, að ekki hefir áhleðslan
ein á lögbergi verið nefnd lögberg, og mátti því segja, að menn riðp
4