Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Page 55
53
fornrit og örnefni, mætti nægja til að sannfæra menn um það, hvar
Lögberg var og er á Þingvelli. — Sennilega hefur það ætíð verið hið
sama, eða á sama stað; ekkert bendir til annars, og að líkindum hefur
það verið tekið upp og staðurinn ákveðinn þegar við stofnun alþingis.
Það mun æ hafa verið notað við þingstörfin samkvæmt lögum og
venjum, meðan hin fornu lög lýðveldisins giltu. í Járnsíðu og Jóns-
bók er ekki á það minnzt, ekki ákveðið eða gert ráð fyrir, að það skulj
notað, nje að neitt fari þar fram. Þingfararbálki Járnsíðu var játað árið
1271. Eftir það hafa engar löglegar samkomur verið á Lögbergi, og
því hefur þess vegna ekki verið haldið við; bekkirnir teknir af áhleðs-
unni eða látnir eyðileggjast, og tímans tönn látin níða og naga bóta-
laust hið sýnilega minnismerki fullkomins frjálsræðis þjóðar vorrar.
Sjera Guðmundur ræðir þessu næst um lögrjettu, hvar á Þingvelli
hún hafi verið »til forna;« telur hann sögurnar »segja skýrt til um
það, að hún hafi verið fyrir austan' á, svo um það« sje »enginn ágrein-
ingur*. Það er nú sem það er skilið; Sigurður Guðmundsson áleit, að
verið gæti, að lögrjettan hefði verið á lögbergi og það austur á Spöng
frá því, að alþingi var stofnað, og þar til, að fjórðungsdómar voru
settir, en eftir þann tíma oftast eða ætíð á söguöldinni á miðjum
Völlunum. Hann áleit, að hún hafi verið í Öxarárhólma 1213—14, og
að hún »hafi opt verið þar seinast, þegar Grágás gilti sem lögbók«;
Alþst. h. f., bls. 41. Á uppdrættinum með þeirri bók og skránni, er
honum fylgir, er lögrjettan talin hafa verið í Öxarárhólma 1229 —
1570, en á völlunum fyrir norðan ána, þar sem var lítil hæð, ýms til-
greind ár á 11. öldinni og 1234, en á Lögbergi (Spönginni), þar sem
mannvirkisleifarnar eru, »frá 929—965«. Virðist Sigurður hafa álitið, að
lögrjettan hafi verið flutt norðan af völlunum út í hólma á fyrri hluta
13. aldar, en litlar líkur munu vera fvrir því. Kr. Kálund, í Isl. Beskriv.,
II., bls. 406 (sbr. I., bls. 125) virtist álíta, að lögrjettan hefði verið norð-
ur á völlunum áður en hún var flutt út í hólma, og Sigurður Vigfússon
sömuleiðis, sbr. bls. 25—8 í Árb. 1880—81 og uppdrátt við ritgerð
hans þar; telur hann lögrjettuna hafa verið þarna á völlunum fyrir norð-
an ána »alla fornöldina og fram á miðja 13. öld«. Þar á móti setti jeg
í grein mína uin lögrjettuna í Árb. 1921—22: »Uppi á völlunum fyrir
norðan ána, þar sem þeir S. G. og S.V. ætla, að hún hafi verið í forn-
öld, álít jeg, að hún hafi aldrei verið«. Færi jeg nokkur rök fyrir þessu
í greininni. — Samkvæmt Þorleifs þætti jarlsskálds hefir haugur hans
sjezt enn, er þátturinn var ritaður, á 14. öld, og verið »norðr af lög-
réttu«. Sæist hann enn í dag, mætti benda með nokkurri vissu á þann