Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1941, Qupperneq 90
84
sem hún hafði að segja um jafn-sjaldgæfan viðburð. Og þegar Gottskálk
settist að í Skagafirði, og hefur, ef til vill, búið í Vík, erfðajörð sinni,
áður en hann fluttist að Glaumbæ, hlaut hann að kynnast mörgu
fólki í sveitinni, sem gat sagt honum frá þessu, eftir sögn foreldra
sinna. Frásögn þessi hefir því ekki gengið í munnmælum áður en
Gottskálk skrásetti viðburðinn, og verð ég því að álíta fyrgreinda
frásögn sanna, og jafnvel tölu glæpamannanna rétta. Telja má vafa-
laust, að Gottskálk hafi haft miklu ýtarlegri sagnir af viðburðinum,
eins og nöfn glæpamannanna og fleira, en af hlífð við þá-lifandi
ættmenn þeirra sleppt að tilgreina þau, auk þess sem annála-frásagn-
ir eru venjulega stuttar og snubbóttar, jafnvel þó um stórtíðindi sé
að ræða, og þeirri tízku hefir Gottskálk fylgt.
Sá, sem næst getur um atburðinn, er Björn á Skarðsá. Hann
tekur upp frásögnina eftir Gottskálksannál, en bætir þó nokkrum
atriðum við, að öllum líkindum eftir munnlegum sögnum; og þær
hefir hann heyrt á Reynistað, þar sem hann ólst upp að nokkru leyti,
og af ýmsum öðrum í sveitinni. I einu atriði ber samt annálunum
ekki saman, og það er um ártalið. Björn tilfærir viðburðinn til ársins
145j. Par sem hann hafði Gottskálksannál fyrir sér, er um annað af
tvennu að ræða: í því handriti hefur getað staðið ártalið 1453, ellegar
að hann hafi talið það ártal réttara en hitt, eftir staðhæfingu heim-
ildarmanna sinna. Hér skal ekki dómur á það lagður, hvort ártalið sé
réttara, þó að Gottskálksannáll ætti að vera tekinn trúanlegri, ef rétt
er með ártalið farið eftir frumriti Gottskálks sjálfs. Og það er ekki
trúlegt, að Gottskálk hafi sett ártalið eftir ágizkun, heldur eftir sögn
móður sinnar og þeirra annara, sem honum höfðu sagt umræddan atburð.
Björn segir, að hellirinn (sem Gottskálk nefnir) sé síðan kallaður
Þjófahellir. Pað örnefni hlaut eðlilega að myndast í sambandi við
dvöl þjófanna í hellinum, en hefir tæplega náð fullri festu þar í sveit-
inni fyr en þriðja kynslóðin frá atburðinum fór að segja frá. Einnig
bætir Björn því við, að þjófarnir hafi verið í gæzlu »í 3 nætur,
meðan þingað var«. Hann segir og, að þeir hafi verið hengdir »þar
suður á vellinum, er síðan heitir Gálgagarður«, en dysjaðir fyrir sunnan á
í gilinu, og af því heiti það Dysja-gil.1) Þó að Björn (f. 1574) sé
einni kynslóð yngri en Gottskálk, er ekkert æfintýralegt við frásögn
hans. Öll þessi atriði bæta upp frásögn Gottskálksannáls og eru öll
sennileg, sem eðlilegt er, þegar jafn-fróður maður og athugull sem
Björn var, sagði frá atvikum, er gerzt höfðu á uppeldisstöðvum hans
1) Skarðsárann. A. B. I., 63.