Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1963, Qupperneq 13
ALTARISKLÆÐI FRÁ SVALBARÐI
17
í III. En ekki er sagan þar öll. Þegar Jóhannes hefur falið biskupi
að annast um hinn unga mann, tekur að segja frá öðru efni. Fyrst
er rætt um ritun Jóhannesar guðspjalls, og í framhaldi af því segir
frá erninum og hví örn sé tákn Jóhannesar. Þar segir meðal annars:
„Örn hefir margar náttúrur og mikils verðar.------------Hér með er
hann svo snarsýnn upp yfir sig móti geislum sólarinnar, að hann
horfir rétt hið gegnsta og hið beinasta móti henni og blöskrar ekki.
Þessa sína list elskar hann svo mjög, að ekki sitt afkvæmi rækir
hann, það er eigi hefir þessa gjöf. Hvað er hann prófar með þeima
hætti, að þegar sem ungar kvenfuglsins eru nokkuð styrknaðir, svo
að þeir megi skefjur þola, grípur hann þá upp í klær sér og setur
þá móti birti sólarinnar til raunar, hvort þeir fái séð í móti henni,
svo að þeir blöskri eigi. — — — Evangelium Jóhannis er einn
brunnur af þeim iiii, er upp spretta í paradiso og döggva allan
skóginn með lystilegri framrás og blómga jörðina til ýmislegs
ávaxtar".8 Því næst koma sögur af tvennum bræðrum (7. og 8.
mynd). Síðan lýkur sögunni af spellvirkjanum.
Myndin sýnir, hvar Jóhannes kemur ríðandi á harða stökki, en
spellvirkinn stendur og starir í jörð. Má segja, að þetta komi vel
lieim við II, IV og Tv. p. s., en röðin bendir á IV og Tv. p. s.
Efst á myndinni sést höndin sem fyrr og auk þess fugl með greini-
legt arnarnef, og í klónum ber hann eitthvað, og þó ekki sé unnt
að greina, hvað það er, verður ekki efazt úm, að þetta sé örn með
unga, sem um ræðir í Tv. p. s. Á milli Jóhannesar og spellvirkja er
eitthvað, sem helzt minnir á blóm eða tré. Má vera, að þetta sé
hluti af hinum döggvaða skógi, sem um ræðir í Tv. p. s. Að öllu
þessu athuguðu verður niðurstaðan sú, að myndin er aðeins í fullu
samræmi við texta Tv. p. s., en fellur ekki jafnvel við aðrar gerð-
ir sögunnar, enda skýrir engin önnur öll atriði myndarinnar.
7. mynd. Tveir bræöur og brotnir gimsteinar.
„I Effeso voru þann tíma tveir ungir bræður, stórlega ríkir eftir
dag feður síns, og með allskonar góssi veraldar auðæfa. Og sem
þeir hafa í setzt erfðina, gera þeir ráð með einum veraldar spek-
ingi, Kraton að nafni, hvað þeir skulu gera af svo miklu góssi, segja
sér það í hug að hafna heimi og eiga enga hluti. Kraton spekingur
gefur þeim það ráð, ef þeir vilja heimi hafna, að þeir skulu venda
sinni erfð í dýrustu gimsteina, og eftir það gjört skulu þeir
koma fram á það breiðasta torg, er finnst í þeirri borg, og brjóta
2