Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1963, Síða 52
56
ÁKBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Ég þakka fulltrúum norrænna safna fyrir kveðjur, gjafir og vin-
arorð. Á voruffn dögum hafa söfn um öll lönd mikið samstarf með
sér. Þjóðminjasafn Islands tekur að sínu leyti þátt í þessu samstarfi
og á margs góðs að minnast bæði af hálfu safna á Norðurlöndum
og annars staðar. Þessir góðu gestir hafa og haft með sér gjafir
til Þjóðminjasafnsins, góða gripi, sem hafðir munu verða til sýnis
i safninu á næstunni, og allir eru þeir mikillar þakkar verðir. En ég
hef fleiri gjafir að þakka, og get ég þess sérstaklega, að mér hefur
borizt bréf frá borgarstj óranum í Reykjavík, þar sem hann tjáir mér,
að borgarráð hafi einróma samþykkt að leggja til við borgarstjórn,
að Þjóðminjasafninu verði afhentar kr. 100 þús. til þess að efla
mannamyndasafnið og vinna úr því. Ég þakka þessa rausnarlegu
gjöf og get fullyrt, að hún kemur í góðar þarfir. Ég þakka einnig
allar aðrar gjafir, sem safninu hafa borizt, svo og kveðjur, skeyti
og blóm. Ég þakka póst- og símamálastjórninni fyrir þá sæmd að
hafa gefið út fögur frímerki í tilefni afmælisins. Og öllum þeim,
sem á einhvern hátt hafa stuðlað því að gera þennan dag eftirminni-
legan og lagt því lið, að þessi hátíðahöld mættu vel fram fara, færi
ég innilegar þakkir. Ég þakka yður öllum komuna hingað.“
Að lokinni þessari athöfn í hátíðasal Háskólans, eða nánar til
tekið kl. 4, söfnuðust boðsgestir saman í anddyri og sölum Þjóðminja-
safnsins. Hafði þangað verið boðið um 600 manns, en af þeim var
talið, að komið hefðu nær 500. Opnuð var afmælissýning sú, sem
safnið hafði stofnað til, en hún nefndist „Islenzkur tréskurður" og
átti að sýna í stórum dráttum þróun íslenzks tréskurðar frá upphafi
til loka 19. aldar. Enn fremur voru á sýningu þessari nokkur atriði
til þess að minna á sögu safnsins og forstöðumenn þess. Vönduð
sýningarskrá var gefin út. Uppsetningu sýningarinnar annaðist Gísli
Gestsson safnvörður að mestu leyti.
Jafnframt því sem gestir skoðuðu sýninguna, voru fram bornar
veitingar, en fagnaði þessum lauk kl. 6. Safnið var lokað fyrir al-
menning á venjulegum sýningartíma, en um kvöldið var það opið
fyrir alla kl. 8—10.
Um kvöldið kl. 8 hafði menntamálaráðherra og frú hans boð inni
í ráðherrabústaðnum fyrir þann fjölda gesta, sem þar má með góðu
móti rúmast. En daginn eftir, mánudaginn 25. febrúar, bauð forseti
Islands erlendum gestum safnsins og nokkrum öðrum til móttöku á
Bessastöðum.