Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1963, Page 53
A.LDARAFMÆLI ÞJÓÐMINJASAFNS ISLANDS
57
Að kvöldi afmælisdagsins flutti Ríkisútvarpið dagskrá helgaða
safninu. Björn Þorsteinsson sagnfræðingur tók dagskrána saman, og
var efni hennar einkum viðtöl við starfsmenn safnsins til þess að
kynna starfsemi þess.
Þjóðminjasafni Islands var sýndur margháttaður sómi og velvild
á þessum merkisdegi þess. Er þess fyrst að geta, er menntamálaráð-
herra skýrði frá í ræðu sinni, að ríkisstjórnin ákvað að efla safnið
með þjóðháttadeild, er vinna skal að rannsóknum íslenzkra þjóðlífs-
hátta á fyrri öldum. Þjóðminjasafnið hefur að sjálfsögðu lengi haft
áhuga á því máli, og á síðustu árum hefur verið unnið að þjóðhátta-
skráningu á vegtyn þess, en nú standa vonir til, að öll sú starfsemi
aukist.
Þá ber þess að geta sérstaklega, að borgarstjórinn í Reykjavík
tilkynnti þjóðminjaverði, að Reykjavíkurborg mundi afhenda Þjóð-
minjasafninu kr. 100.000.00 til þess að efla mannamyndasafn þess
og vinna úr því. Kemur þessi höfðinglega gjöf í mjög góðar þarfir.
Margir urðu til þess að gefa safninu gjafir í tilefni afmælisins,
og skulu þeir nú taldir upp og nefndar gjafir þeirra:
Föroya landsstýri: Líkan af færeysku áttamannafari.
Norslc folkemuseum, Bygdöy, Ósló: Máluð ölskál stór og tágakarfa.
Nationalmuseum, Helsinki: Skrautritað skjal í möppu.
Ásmundur Jónsson frá Skúfsstöðum og Jenný Guðmundsdóttir,
Hafnarfirði: Afrit af uppskrift á dánarbúi Sigurðar málara, gerð
fyrir ættingja hans fyrir norðan.
Harald Salomon, yfirmedaljör, Kaupmannahöfn: Steyptur brons-
skjöldur með mynd Georgs Galsters myntfræðings.
Hansína Jónsdóttir, Reykjavík: Glitofið áklæði frá 1857.
Halldóra Sigurjónsdóttir, Reykjavík: Saumavél, nær 100 ára.
Haraldur Ólafsson bankaritari, Reykjavík: Tréausa, sögð smíðuð
af Fjalla-Eyvindi.
Anne, Cecilie, Þórhildur og Páll Helgason, börn Jóns biskups Helga-
sonar: Allar kirknateikningar Jóns biskups, þær er hann gerði á
vísitazíuferðuln sínum, og er þetta safn í alla staði stórmerkilegt.
Sigurbjörg Jónsdóttir, Reykjavík: Trafaöskjur frá 1737.
Séra Jón M. Guðjónsson, Akranesi: Teikning af gamla bænum
á Melum í Melasveit, þeim er séra Helgi Sigurðsson bjó í.
Brynjúlfur Dagsson læknir, Kópavogi: Örnefnasafn Brynjúlfs
Jónssonar frá Minnanúpi, afa gefanda.
Jón Leifs, tónskáld: Gjafabréf fyrir 65 vaxhólkum með gömlum
þ j óðlagaupptökum.