Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1963, Síða 62

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1963, Síða 62
66 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Brúnirnar eru strikaðar með ý\msum hætti. Er það allt frá einu striki á efri brún og til þess að höggnar séu í brúnirnar eins konar ferhyrndar tennur eða tappar með jafnstórum grópum á milli. Virð- ast strikin hafa verið hefluð eða skafin í steinana. Letrið er mismunandi mikið á steinunum, allt frá einfaldri graf- skrift, þar sem einungis er getið nafns, fæðingar- og dánarárs við- komandi og nafns maka og giftingarárs, og til langrar og hjart- næmrar lofrollu, sem oft er að nokkru leyti stuðluð eða jafnvel í ljóð- um. Letrið sjálft er ýmist stórir, latneskir upphafsstafir eða þá eins konar skrifletur, og á suímum steinunum eru báðar leturgerðirnar. I greinargerð þessari verður hverjum steini lýst fyrir sig. Reynt hefur verið að láta sérkenni áletrananna koma eins vel fram og kostur er á. Alls staðar þar sem letrið er horfið eru hornklofar settir utan um það bil, er til þeirra svarar. Þar sem örugglega hefur mátt ráða í horfna stafi, eru þeir settir innan hornklofanna, annars punkt- ar. Þau einkenni áletrananna, sem talin voru gjörsamlega þýðingar- laus, t. d. þegar steinhöggvarinn hefur gleymt staf og sett hann svo lítinn inn á milli lína á eftir, en þetta kemur nokkrum sinnum fyrir, eru ekki sýnd eða nefnd hverju sinni. Þar sem tveir stafir eru bundnir saman, svo sem alloft er, t. d. AR eða TT, eru þeir leystir sundur athugasemdalaust. Þar sem orð eða orðshlutar eru bundnir með striki yfir staf, eru þau bönd leyst upp í nokkrum tilvikum og rituð með skáletri. Auðvelt væri að afla fleiri mannfræðilegra upplýsinga um fólk það, sem undir steinunum liggur, þó að það verði ekki gert hér. Margt má um það lesa í ritum Kristleifs Þorsteinssonar, sem sjálfur hefur þekkt sumt af því persónulega (f. 1861). Þess skal getið, að ártöl og dagsetningar koma ekki alls staðar heim við kirkj u- bækur, þótt yfirleitt skeiki ekki miklu, en ekki verður þetta rakið hér. Lýsing legsteinanna hefst með fjórum steinum, er liggja suður frá kirkjunni í nær réttri röð út frá bilinu milli fremsta og næstfremsta glugga. Þeir eru allir úr hinum rauða sandsteini, sem vel mætti kalla Húsafellsstein, enda hefur Matthías Þórðarson gert svo, þar sem hann minnist á slíka steina í skrá sinni um kirkjur og kirkjugripi, sejn geymd er í Þjóðminjasafni og venjulega gengur undir nafninu Kirknabók. Guðmundur Illugason lögregluþjónn hefur veitt þá mannfræði- legu vitneskju, sem fram kemur í fyrirsögnum einstakra þátta hér á eftir, og kann greinarhöfundur honum þakkir fyrir.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.