Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1963, Síða 117
ISLENZKUR TRÉSKURÐUR I ERLENDUM SÖFNUM
121
3. Útskurður ofan á lokinu. Samhverf tilhögun. í miðjunni, inn-
an í mjóum sléttum hring, eru tveir þríhyrningar, gerðir úr böndum
með innri útlínum. Þríhyrningunum er brugðið saiman svo að þeir
mynda stjörnu. Innan í henni er stór rósetta, sem myndast af úr-
hvelfdum blöðum, kringdum fyrir endana, 6 breiðum og 6 mjóum
milli þeirra. 1 öllum þeim reitum, sem böndin annars mynda, eru
munstur af slíkum blöðum. Utan yfir þessu er bylgjuteinungur, síð-
an annar mjór, sléttur hringur, þá höfðaleturslína og yzt tveir mjóir
sléttir hringar. Teinungurinn er mjög reglulegur. í hverri bylgju
er uppundin grein með einu eða tveimur úrhvelfdum tungulaga blað-
flipum. Að öðru leyti einnig uppfyllingar með einu eða tveimur þess
konar blöðum. Þverbönd þar sem greinast stönglar og blöð. Innri
útlínur. — Mjög laglegt verk.
4. Ekkert ártal.
5. Höfðaletursáletrunin: þoorelva ioons dootter
a öskiurnar med riettu og er uel a
6. Safnskýrslan: Icelandic, about 1700.---------Given by Mrs.
Lilian Albert.
TRAFAKEFLI
1. 706—1888. Trafakefli úr beyki. Svo sem uppundið handfang
á fremri enda, en ofan á eftri enda hátt og gegnumskorið handfang.
Við bæði handföng eru dálitlir kaflar hærri en keflið að öðru leyti.
En bæði þessir hærri kaflar og miðbik keflisins milli þeirra hafa
sneiddar brúnir. Með stórum nöglum er keflið neglt á breiða og
þunga beykifjöl (sem líklega er yngri). L. (sjálfs keflisins) 57,2.
H. (með eftra handfangi) 8, 5. Br. 6,7.
2. Dálítið slitið, einkum fremst, annars óskemmt. Ómálað.
3. Útskurðir víðast hvar nema neðan á. Fremra handfang er al-
þakið naglskurði. Á kaflanum næst því eru vængjaðir lágt upp-
hleyptir drekar á skáflötunum hvorum megin, en eitthvert óskil-
greinanlegt flatskurðarskreyti á lárétta fletinum milli þeirra (kefl-
ið er hér slitið og stór ryðgaður nagli í gegn). Dálítill teinungsbút-
ur, flatur og upphleyptur á lóðréttu hliðarflötunum báðum megin við.
Sams konar teinungur er einnig á skáflötunum á upphækkaða kafl-
anum við eftra handfang. En á lóðréttu flötunum þar er frumstæð-