Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1963, Qupperneq 124
SKYRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1962
Starfslið. Karla Kristjánsdóttir, bókari safnsins, bættist við fast
starfslið þess hinn 15. apríl, en að öðru leyti var það óbreytt frá
síðustu áramótum. Auk fastra starfsmanna vann Guðmundur Þor-
steinsson frá Lundi hér að viðgerðum safngripa um fjögurra mánaða
skeið eins og að undanförnu, enn fremur Elsa E. Guðjónsson M. A.,
sem hélt áfram að vinna við veftir safnsins, og Þór Magnússon
fornfræðastúdent, sem gegndi almennum aðstoðarmannsstörfum 18.
júlí—31. ágúst. Hafði hann áður um sumarið, fyrir atbeina þjóð-
minjavarðar, unnið að skrásetningu Byggðasafns Skagfirðinga á veg-
um stjórnar þess.
Almenn safnstörf. í öllum aðalatriðum hafa almenn safnstörf verið
með líku sniði og áður. Gísli Gestsson hafði umsjón með daglegum
sýningum og annaðist alla ljósmyndun, Halldór J. Jónsson hafði eftir-
lit með öllum þörfum hússins, en varði þar fyrir utan miklu af tíma
sínum til þess að ljúka við að raða bókasafni og skrásetja það. Um
áramót er því verki að langmestu leyti lokið, og eru nú á spjaldskrá
bókasafnsins alls um 3300 titlar, þegar með eru talin sérprent, en
auk þess á safnið meira eða minna úr 4—500 tímaritum. Þorkell
Grímsson hélt áfram rannsókn sinni á skjalagögnum innréttinganna
í Reykjavík. Er hér aðeins drepið á helztu verkefni, sem unnið hefur
verið að, en engin leið er að skýra í smáatriðum frá daglegu starfi,
hvorki safnlegu né fræðilegu.
Sýningar og aðsókn. Sýningartími var hinn sami og í fyrra, 9
stundir, sem skiptust á fjóra vikudaga nema sumarmánuðina þrjá,
júní—ágúst, er safnið var opið á hverjum degi kl. 1 —4. Skráður
gestafjöldi var 24.976, og er það allmiklu færra en í fyrra, enda
óvenjumargir gestir þá.
Alls voru haldnar 16 sérsýningar í bogasalnum eða eins og hér
segir:
Sýning á eftirprentunum 30 frægra þýzkra málara, haldin af
Menntamálaráðuneytinu, 25.—28. jan.
ísleifur Konráðsson, málverkasýning, 3.—11. febr.