Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1963, Side 128
132
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Hinn 11. júlí fóru þeir þjóðminjavörður og Gísli Gestsson ásamt
Þórhalli Vilmundarsyni prófessor vestur um haf til þess að taka
þátt í rannsóknum á fornum minjum hjá þorpinu Lance-aux-
Meadows nyrzt á Nýfundnalandi. Helge Ingstad rithöfundur frá
Noregi og kona hans Anne Stine Ingstad fornleifafræðingur höfðu
boðið íslendingum að taka þátt í rannsókn þessara minja, sem þau
töldu vera eftir norræna menn á fornum tíma. Þjóðminjavörður dvald-
ist ásamt Þórhalli Vilmundarsyni á rannsóknarstaðnum frá 17. júlí
til 9. ágúst, en Gísli Gestsson frá 17. júlí til 27. ágúst. Loftleiðir
buðu leiðangursmönnum far yfir hafið báðar leiðir, en að öðru leyti
stóð ríkissjóður straum af kostnaði við ferðina. Leiðangursmenn
hafa skrifað sérstaka skýrslu um þátttöku sína í þessum uppgrefti,
og verður hún ekki birt fyrr en lokið er úrvinnslu allra gagna, er
fram komu og nú eru væntanlega í rannsókn í Noregi.
Erlendir fræðimenn. Norski rithöfundurinn og landkönnuðurinn
Helge Ingstad og kona hans Anne Stine Ingstad fornleifafræðingur
komu til Islands 20. febrúar og dvöldust hér um vikutíma. Sá safnið
um að skipuleggja ferð þeirra. í ferðinni lagði Ingstad til aö ís-
lenzkir fræðimenn tækju þátt í rannsóknarferð þeirra hjóna til Ný-
fundnalands sumarið 1962, og var því boði tekið, eins og hér að
framan greinir.
Knud J. Krogh arkitekt frá Nationalmuseet í Kaupmannahöfn
kom hér við í ágúst á leið sinni frá rannsóknunum í Brattahlíð á
Grænlandi til þess að kynna sér gamlar íslenzkar torfbyggingar.
Skoðaði hann einkum þau hús, sem fornleifavarzlan annast á Norður-
landi.
Marta Hoffmann safnvörður frá Norsk folkemuseum á Bygdöy
kom hingað 13. sept. og dvaldist til 12. okt. Vann hún við rannsókn-
arstörf á safninu því nær allan þann tíma og gerði umfangsmiklar
athuganir á vefstólum og vefnaði.
Kolbjörn Skaare myntafræðingur frá Óslo kom hingað 18. maí
og fór gegnum fornar myntir, sem fundizt hafa hér á landi og í
safnsins vörzlu eru.
Listaverkagjöf til safnsins. Hinn 8. nóv. sýndi þjóðminjavörður
menntamálaráðherra og nokkrum gestum öðrum þrjá listglugga
(mósaik-glugga), sem settir höfðu verið upp í Þjóðminjasafnshús-
inu. Skchnmu fyrir andlát sitt (1958) hafði Sigurður Guðmundsson
arkitekt skýrt þjóðminjaverði frá því, að hann vildi gefa einn slíkan
glugga í húsið til minningar um konu sína, frú Svanhildi Ólafsdótt-
ur. Hafði hann falið Nínu Tryggvadóttur listmálara að gera frum-