Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1879, Page 20

Kirkjutíðindi fyrir Ísland - 01.01.1879, Page 20
20 hafa dugað henni síðan kristni hófst hjer á landi. Tím- amir eru breyttir: prestaefiii koma nú fákænni í bún- aði og fátækari að efnum, eptir hinn mikla námskostn- að, inn í prestsstöðuna en nokkru sinni fyr. Margir atvinnuvegir standa nú opnir menntuðum mönnum, sem eru miklu lífvænlegri en íjölda mörg prestaköll, en áður voru vegir þessir luktir. Að læra í skóla, var sama og að „læra til prests“. þ>ær raddir hafa að vísu heyrzt, að prestar ættu ekki að hugsa um þessi stundlegu efni; en þeir verða þó víst að gjöra það, meðan þeir eru menn, og hafa stundlegar þarfir/'eins og aðrir menn. Hvað væri æskilegra, en að prestarnir gætu haft sama innblástur og áhrif heilags anda og postularnir, og gætu lifað því sama lífi? En jeg held, að sjálfir þeir, sem tala í þá átt, tali ekki í alvöru, og hljóti að sjá, að það getur ekkiverið. Aðrar raddir, svo sem „Sund- urlausar hugsanir um prestamálið“ í 2. árg. „Skuldar“, eru naumast þess verðar, að á þær sje minnzt. Er það, sem þar er framborið, mælt af jafnmikilli illgirni og óviturleik. Og við hverju mundi vera að búastafhöf- undi, sem lætur sjer það um munn fara, „að ríki og kirkja hafi ekkeri saman að sælda?“ því, svo jeg nefni eitt, þá nefni jeg eiðinn. Við hvað sver ríkisstjórinn og embættismenn ríkisins, og þingmenn ríkisins, ef engin kirkja er og engin trú? 1 Jeg held, að blöð vor geti ekkert gjört óþarfara, en að beraum gersak- ir og illar tilgátur, sem embættismenn og aðrir hafa hver um aðra. Eða hver heiðvirður og samvizkusam- ur maður vill segja, að prestarnir sjeu prestar aðeins til að fá peninga, og kenni það í Guðs nafni, sem þeir sjálfir ekki trúa, heldur álíta hjátrú? Væri ekki jafn- *) pað er annars merkilegt, hve títt þvi er nú varpað fram i blöðum vorum, að aðskilja beri ríki og kirkju ; er það opt gjört af þeim, sem enga hugmynd hafa um, hvaða afleiðingar það hefir. Vil jeg við fyrsta tækifæri skýra það mál nokkuð í kirkjutiðindunum.

x

Kirkjutíðindi fyrir Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjutíðindi fyrir Ísland
https://timarit.is/publication/112

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.