Lögrétta - 01.01.1934, Blaðsíða 7

Lögrétta - 01.01.1934, Blaðsíða 7
13 14 LÖGRJETTA Sígurðar kvíða S'áínísbana Sígurjón Tríðjónsson SV, 'Harmar Örynhíldar, Mansöngur. „Með þjer þreyjan fór mjer frá. Finn jeg eigi gengur aö jeg megi af þjer sjá einum degi le.ngar“. Siggeir Pálsson. Heyrðu góða! er hálftungl skín hafðu á óði gætur. Til þín ljóðin ljettu mín leita um hljóðar nætur. Ar og sið úr Viðris vör vors á þýða hreiminn þrá mín líður eins og ör út í víðan geiminn. Margt er að tjá um munarfund, móða blá til hlíða, er þú hjá mjer stund og stund stillir þrá og kvíða. Trúa, hreina hjartað þitt og hjal á leynifundum reyndust eina yndið mitt oft á meinastundum. Gleymi’ jeg eigi kinn við kinn og kossum fegins tíðar. Vel má þegja í þetta sinn um þína vegi síðar. Rjetthverft miðað ljós og loft leika um kviður þjóða. En — skuggahliðin alt eins oft elur kliðinn ljóða.------ Lyft er skildi. Ljós af grein leiftrar mildum varma þar, sem Hildur eldar ein ástarvild og harma. í skemmu kóngsdóUur. Pór jeg um lönd með frægan her; fór um í sigurglaumi. Konungar fjellu að fótura mjer. Þó fann jeg ei neinn, sem var líkur þjer. — Fór um í frægðardraumi. Fann ekki hald af taumi. Oðinn og Freyja um orustuhrós unna’ ekki konu að dreyma. Guðirnir saman dreng og drós draga sem stefnt er fljóti að ós. Oljóst um yndisheima ósk mína tók að dreyma. Oðinn seiddi mjer svefn á brár; Svefnþorn stóð fast í leyni. Sofnuðu draumar til frama og fjár. Festist í huga við nýjar þrár ímynd af ungum sveini. Alstaðar var hann sá eini. Svo hittumst við eina árdagsstund; eldar á fjöllum brunnu. Enginn man stærri fagnafund nje fjekk dýrri von í heimanmund. Æska og gleði unnu eiða við morgunsunnu. — Gengið er nú það, gerðist fyr; gleðinnar dagar að baki. Horfi jeg þögull um hallar dyr. Horfi þó ekki’ eftir frægð og styr. Hlusta’ eftir hófataki. Hlusta um nætur og vaki. Konungar prúðir með kappasveit koma og burtu streyma. Einn er þó sá, sem jeg aldrei leit eftir þá stund, sem jeg kærsta veit. Man hann hvar mær á heima? Mundi hann BryDhildi gleyma?

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.