Lögrétta - 01.01.1934, Page 47
93
LÖGRJETTA
94
fet þar sem þau fara dýpst. Það hefur kost-
að um átta ára erfiða vinnu að grafa göng-
in og kostnaður hefur numið rúmum 7 milj.
punda, og farið rúmlega hálfa aðra miljón
fram úr áætlun (aðallega vegna mjög full-
komins loftræstingarkerfis, sem sett er í
göngin). Þau eru sívöl og gerð úr mjög
sterkri, járnbentri steinsteypu. Það gefur
nokkra hugmynd um það, hversu mikið
verk bygging og steypa veggjanna hefur
verið, að í þau fóru hundrað þúsund smá-
lestir af járni og hundrað og fimtíu þúsund
teningsyards af steinsteypu. Verkfræðing-
arnir gera ráð fyrir því, að hálf miljón ten-
ingsyards af grjóti hafi verið sprengt sund-
ur og tekið innan úr göngunum með miklu
erfiði.
1 botni jarðganganna er þreföld akbraut
gerð úr þykkri járnbentri steinsteypu, en
gangstjettir beggja megin. Brautin er 36
feta breið. Menn gera ráð fyrir því, að hálf-
önnur miljón vagna fari um göngin á fyrsta
ári, eða um fjögur þúsund á dag til jafn-
aðar, en til þess voru göngin gerð, að bæta
úr brýnni samgönguþörf yfir ána, milli fjöl-
mennra verslunar- og iðnhjeraða, því að
undanfarið hafa ferjurnar yfir Merseyfljót
flutt sjöhundruð þúsund vagna og sextíu
miljónir manna á ári. Nokkuð af kostnað-
inurn við smíði gangnanna á að vinna upp
smám saman með ökuskatti á farartæki þau,
sem um þau fara. Alt sem í mannlegu valdi
stendur er líka gert til þess, að gera um-
ferðina um göngin þægilega og örugga.
Göngin eru lýst upp með skærum rafmagns-
lömpum, með 20 feta millibili, og brunaboð-
ar og eldslökkvistöðvar eru þar með 150
feta millibili. En erfiðasta viðfangsefnið í
þessum efnum hefur verið loftræstingin og
þó er sagt, að verkfræðingunum hafi nú
tekist að leysa þá þraut vel. Sex stórar loft-
ræstingarstöðvar eru reistar í sambandi við
göngin, en þeim er ekki alveg lokið ennþá.
Þær munu kosta als 570 þús. pund, en all-
ur kostnaður við loftræstinguna verður mil-
jón pund. Endastöðvarnar dæla inn í göngin
2,750.000 teningsfetum af fersku lofti á
hverri mínútu og dæla jafnframt út óhreinu
lofti, fyrst og fremst ýmsum úrgangsloft-
tegundum bílanna, sem gsgtu orðið hættu-
BÓKMENTABÁLKUR_________
------ LÖGRJETTU
Harold Nicolson hefur nú gefið úr þriðja
bindið af lýsingu sinni á milliríkjamálum síð-
ustu tíma og nokkurum sjerkennilegustu
mönnum sem um þau fjölluðu og segir þar
frá Curzon (Curzon. The Last Phase). Nicol-
son lýsir honum svo, að hann hafi hvorki til-
heyrt hinni gömlu nje nýju stefnu í milli-
ríkjamálum heldur hafi hann viljað sameina
kosti þeirra beggja. — A sænsku er að koma
út stórt rit og vandað, sem einnlg lýsir sams-
konar málum, en á annan hátt. Það er saga
samtíma okkar (Vár egen tids historia) og
segir fyrra bindið (eftir Tingsten) frá sigri
og kreppu lýðræðisins, en síðara bindið (eftir
Svanström og Enander) frá baráttunni um
friðinn og nýlendurnar. Rutger Essén hef-
ur einnig gefið út nýja bók um nokkur helstu
úrlausnarefni samtímans í Evrópu (Debatin-
lág om Evropa) og gerist þar talsmaður
þess að þjóðabandalaginu verði breytt í
Evrópubandalag, en lýsir annars, í viðræðu-
formi, ýmsum helstu stefnum sem nú eru
uppi t. d. nasismanum. Af þeim atburðum,
er gerast utan Evrópu, hefur hin nýja stefna
Roosevelts eðlilega dregið að sjermestaat-
legar, ef einungis væri notuð eðlileg loftrás,
eins og tíðkast hefur í eldri og minni jarð-
göngum. Hreina loftinu er dælt inn í pípur,
sem liggja neðst meðíram brautinni og eru
á þeim op með fárra þumlunga míllibili. Ef
loftræstingin fer úr lagi, á að vera hægt að
stöðva umferð um göngin á svipstundu.
Verkfræðingurinn, sem gerði áætlanirnar
um göngin, heitir Sir Basil Mott, en Georg
konungur opnaði þau og mælti þá m. a.:
Jeg lofa það ímyndunarafl, sem gert hefur
áætlanirnar um þetta mannvirki, það hugvit,
sem hefur framkvæmt þær og jeg vænti
þess, að þær þúsundir manna, sem eiga eft-
ir að fara um þessi göng, minnist með þakk-
læti og aðdáun þeirra manna, sem erfiðað
bafa í rnold og myrkri, til þess að ljúka
þessu þrekvirki. Konungur nefndi göngin
Queens Way, Drotningarveg.