Óðinn - 01.07.1932, Síða 4

Óðinn - 01.07.1932, Síða 4
52 ÓÐ I N N Bjarni Pálsson prófastur og frú Ingibjörg Guömundsdóttir í Steinnesi. Bjarni var fæddur á Gilsstöðum í Vatnsdal 20. janúar 1859 og ólst þar upp hjá foreldrum sín- um. Þaðan fór hann í Latínuskólann og útskrifaðist þaðan 1884 með 1. eink., en af Prestaskólan- um 1886, einnig með 1. eink. 31. ág. sama ár var hann skipaður prestur að Ríp í Skagafirði, en fjekk 14. okt. 1887 veitingu fyrir PingeyrarogHjalta- bakka sóknum, eft- ir andlál sjera Por- valds Ásgeirssonar, sem áður var þar prestur.Sjera Bjarni var 7. mai 1914 skipaður prófastur í Húnavatnspró- fastsdæmi. Hann andaðist3.júní 1921. Ólafur Paulson skrifstofustjóri í Kaupm.höfn, bróð- ir sjera Bjarna, lýs- ir honum svo á uppvaxtarárunum : »Sjera Bjarni líktist meira móður sinni en föður, bæði að útliti og skapferli. Hann vargrannvax- inn, dökkhærður, fölleitur, hægur í framgöngu, fámæltur en viðmótsgóður ogöldungistilgerðarlaus í látbragði; hneigðist snemma að bóklestri og var bráðþroska bæði andlega og líkamlega, hafði þegar áfermingaraldrilesið alt, sem hann náði í af islensk- um ogdönskum bókum. Hann hafði ágæt hljóð sem drengur, en mun hafa skemt þau tilfinnanlega á raddskiftaárunum. Fullvaxinn var hann 15—16 ára, sterkur og duglegur til vinnu, skylduræk- inn, greiðvikinn og vinsæll, og gerðist meira mannblendinn er hann stálpaðist og fór að taka þátt í viðræðum og skemtunum, iðkaði töluvert glímur og þótti skæður glímumaður er hann var 17—18 ára. Bækurnar drógu hann þó mest til sín, og þótt efnahagur foreldra hans væri ekki sem bestur, var það loks afráðið, að hann skyldi fara i skóla. Kom hann þangað 1878 og varð stúd- ent sex árum síðar. Bjarni var næst- elstur af systkinum sínum og stærri og þroskameirienjafn- aldrar hans. Var hann því sjálfkjör- inn til foringja i barnahópnum, og það var eins og hann fyndi til þess, að foringjastaðan legði á hann skyld- ur. Hann skifti sól og vindi eins rjett og auðið var, hjálp- aði smælingjunum og refsaði ofstop- unum og var jafn- framt á verði gagn- vart hættum útifrá. Eitt dæmi um það er þetta: Pegar foreldrar Bjarna bjuggu á Þingeyr- um, var hann, sem þá var 7 ára, einn góðan veðurdag að leika sjer úti á hlaði með systkin- um sínum og öðr- um börnum. Alt í einu heyrðist hófatramp. Einn af vinnumönnunum, sem ekki gat sjeð börnin, koni þeysandi með sæg af hestum utan úr haga. Petta sjer Bjarni og grípur orðalaust leikfjelaga sina einn af öðrum og lyftir þeim upp í kerru, sem stóð á hlaðinu. Hestarnir voru nú á fleygiferð í tröðinni, og rjett í því er Bjarni sjálfur hoppaði upp í kerruna, rauk

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.