Óðinn - 01.07.1932, Blaðsíða 6

Óðinn - 01.07.1932, Blaðsíða 6
54 ÓÐINN lega að þeirra tíma sið, þá lagði hann það alveg niður þegar aldarhátturinn breyttist og hugs- unarháttur almennings varð vinnautninni and- vígur; fór svo mörgum af ágætismönnum þjóð- ar vorrar, enda eru þessi tvö atriði þau öfl, sem öllu ráða í þessu mikla máli, og er leitt til þess að vita, að forvígismenn bindindishreyf- ingarinnar skuli ekki vilja láta sjer skiljast, að boð og bann eru þýðingarlítil, ef bindindisstarf- semin hefur tapað aðalvopnunum úr hendi sjer fyrir ofstæki og skammsýni. — Um heimili og heimilisstarfsemi Bjarna próf. verður varla tal- að svo rjettilega sje, nema minst sje jafnframt á frú Ingibjörgu, þá mætu konu, sem varði öll- um sinum kröftum og öllu sínu starfi til heilla og heiðurs heimilisins. Frú Ingibjörg Guðmundsdóttir var fædd á Brekku f Víðimýrarsókn 5. mars 1867, dóttir Guðmundar Sölvasonar hreppstjóra og Mar- grjetar Björnsdóttur, en alin var hún upp hjá ólafi bónda Sigurðssyni í Ási í Hegranesi og konu hans Sigurlaugu Gunnarsdóttur, er var náfrænka bennar; má um ættir þeirra (Skíða- staðaættina) sjá nánara í Ættartölum Skagfirðinga eftir Pjetur Zóphóníasson. Haustið 1888 giftist hún sjera Bjarna Pálssyni, en hún andaðist þann 1. maí 1916. Frú Ingibjörg var fríðleikskona, há vexti og tíguleg, svipurinn hreinn og góðlegur, og framkoman hin göfugmannlegasta; hún var glaðlynd, hæglát og þreklunduð kona. 1 hinni miklu vakningaröldu, sem gekk yfir þjóðina á öldinni sem Ieið, hefur Sigurðar mál- ara Guðmundssonar verið minst i sambandi við stofnun Forngripasafnsins og þess, að hann lag- færði búning kvenna. En mjer virðist oflítið hafa verið haldið á lofti, hve mikil óbein áhrif hann hlýtur að hafa haft á skólamál kven- þjóðarinnar, því eins og allir vita myndaðist hannyrðaskóli á þjóðlegum grundvelli í Reykja- vik fyrir hans áhrif, á þá leið, að áhugasamar ungar meyjar saumuðu sjer hátíðabúninga eftir hans fyrirsögn, og skreyttu þá með alskonar hannyrðum, og það var ekki hans sök, að sá þjóðlegi grundvöllur var ekki eins vel ræktaður í mentastofnunum kvenna, eftir að fastir skólar vóru reistir, og æskilegt hefði verið, enda var Sigurður þá úr sögunni, því hann dó 1874, sama árið og Kvennaskólinn i Reykjavík var stofnaður, en hann var fyrstur fasti skóli fyrír konur hjer á landi. En eftir að Sigurður hafði vakið löngun kvenna til að koma sjer upp þjóðlegum búningi, þá risu upp víðsvegar i land- inu heimilisskólar, sem ýttu undir stofnun full- komnari skóla. Þannig var það í Eyjafirði, Skaga- firði og Húnaþingi, og brautryðjendur voru frú Valgerður Rorsteinsdóttir í Eyjafirði, frú Sigur- laug Gunnarsdóttir i Ási og frú Guðrún Gísla- dóttir í Steinnesi, kona Eiríks próf. Briem’s. Allar þessar konur hjeldu um nokkurra ára skeið slíka skóla á heimilum sínum, en 1877 voru kvennaskólar settir á stofn á Laugalandi fyrir Eyjafjörð og í Ási, hjá frú Sigurlaugu, fvrir Skagafjörð. Peir Sigurður málari og ólafur í Ási voru bræðrasynir, enda var frú Sigurlaug fyrsta konan í Skagafirði til að taka upp skautbúning Sigurðar. — Án þess að fara lengra út í þetta mál, má víst fullyrða, að heimili þeirra Ólafs og Sigurlaugar i Ási var hið þjóðlegasta, og stóð í fremstu röð myndarheimila í Skagafirði. Á þessu heimili ólst frú Ingibjörg upp, og naut þar allrar þeirrar mentunar, sem heimilið gat veitt, en auk þess var hún 2 vetur á Kvennaskólanum á Ytri-Ey. Þau hjónin sjera Bjarni og frú Ingibjörg voru þannig bæði upp alin á fyrirmyndarheimilum. Var því mjög eðlilegt, að þau höguðn öllu fyrir- komulagi heimilis síns, og hjeldu öllum heimilis- brag, eins og þar sem best var á sveitabæjum, enda hafa sveitaprestar allajafna skoðað sig sem bændur — mentaða bændur. Fyrir alla þá, sem alist höfðu upp við slíkan heimilisbrag, var unun að koma á heimili þeirra hjóna, þar sem öllum fornum heimilisreglum var haldið uppi með stakri reglu, og framförunum beint á þjóðlegar brautir. Pað var sannarlega að koma í friðsælan reit að koma í Steinnes, þar sem iðjusemi og reglusemi vóru samtengd umhyggju og fyrir- hyggju húsbændanna, gestrisnin í ríkum mæli að gömlum og góðum sið, enda gnægtir í búi alla jafna, þó heimilið væri stórt og barnahóp- urinn yrði mannmargur. Síðari ár ævi sinnar varði sjera Bjarni tíma sinum og eigum til að menta börn sín. Hann bjó syni sína hvern af öðrum undir nám í æðri skólum, af 8 bræðrum gengu 4 mentaveginn og luku háskólaprófi, 2 gerðust verslunarmenn, 2 völdu verkleg störf. Þá var eins með systurnar 3, að þær vóru mentaðar bæði innanlands og utan, eftir föngum. Mega það allir vita, að til als þessa þurfti mikinn áhuga og mikla ráðdeild, en alt fór þetta þeim Steinnes-hjónum staklega

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.