Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Side 12

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Side 12
164 ber Darwin ssman Malaya-eyjar og Európu. Svæði ^það, sem Malaya-eyjar ná yfir, er á stærð við Eu- rópu frá Knöskanesi suður að Miðjarðarhafi og frá Englandi til Rússlands ; svæði þetta er með öðrum orðum einsstórt og sá hluti jarðar, sem bezt er þekkt- ur í jarðfræðislegu tilliti. A milli eyjanna eru breið og grunn sund, og er þar því líkt háttað, eins og var í Európu fyrmeir, á „tertiera“ tímanum og áð- ur. Nú hefir lífið óviða náð öðrum eins þroska, eins og á þessum eyjum; en þó menn söfnuðu sam- an öllum tegundum, sem þar eru, þá mundu menn þó hafa mjög litla hugmynd um náttúrusögu allrar jarðarinnar. Ef þessar tegundir yrðu að steingjörv- ingum, þá væri öll ástæða til að halda, að þessir steingjörvingar gæfu enn þá minni hugmynd um jarðlífið, margar tegundir landdýra mundu hverfa gjörsamlega o. s. frv. Menn geta því ekki búizt við að fá nána hugmynd um allan þann aragrúa af millumliðum tegunda, sem áður hefir verið til, úr því rannsókn jarðlaganna er enn svo stutt á veg komin. í sumum jarðlögum hafa menn fundið heila dýra- flokka, sem engin merki hafa sézt af l eldri jarð- lögum, og telja sumir jarðfræðingar það mikla sönn- un móti kenningu Darwins um uppruna tegund- anna; en hér verða menn aptur að gæta þess, hve lítinn hluta jarðarinnar vér enn þá þekkjum; það þarf ekki að taka neitt mark á því, þó tegundirnar komi svo skyndilega fram í einhverju jarðlagi, því forfeður tegundanna geta hafa þróazt einhversstaðar annarstaðar í fjarlægum héruðum, og auk þess hefir opt geipilangur tími liðið á milli myndunar jarðlaga, sem hvert liggur ofan á öðru, og þær lifandi verur, sem til hafa verið í því millibilsástandi, hafa engin merki látið eptir sig. Menn hafa lfka séð á seinni árum,

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.