Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Side 19

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Side 19
171 fyrir tegundina. Ef dýr og jurtir frá ,tertiera“- timanum ættu að keppa við dýr og jurtir, sem nú eru, mundu þær eflaust hafa miður, en þær mundu aptur sjáifsagt sigra tegundir frá eldri jarðöldum. Menn geta líka búizt við, að líffærabygging eldri dýra sé ófullkomnari en hinna, er seinna hafa skap- azt, enda munu allir jarðfræðingar vera á eitt sáttir, að svo muni hafa verið, þó sjaldnast sé hægt að sanna það, enda eru menn ekki ásáttir um, hvað fullkomnun er; einum sýnist þetta, öðrum hitt. í>að er og mjög örðugt að dæma um byggingu forn- dýranna, þegar menn ekki einu sinni með fullri vissu geta ráðið úr því, hvað er þýðingarmest í byggingu þeirra dýra og jurta, sem nú lifa; smá- vegis atvik og ósýnilegar breytingar í líffærunum geta valdið því, að ein tegund verður annari yfir- sterkari. Dýr og jurtir þær, sem flutzt hafa frá Európu til Nýja-Sjálands, hafa viða eytt og útrýmt þeim tegundum, sem áður voru þar í landi, en ekki ein einasta tegund af suðurhveli jarðar hefir getað setzt að í Európu að staðaldri. Ef allar jurtir, sem nú vaxa á Englandi, væri fluttar til Nýja-Sjálands, væri öll líkindi til, að þær rnundu tortíma flestum tegundum, sem þar eiga heima, en þó jurtagróður Nýja-Sjálands væri fluttur til Englands, inundi það engin áhrif hafa gagnvart þeim tegundum, sem þar eru fyrir. Af þessu mætti ætla, að tegundirnar frá Európu væri fullkomnari að byggingu en hinar; en þó getur enginn enn sem komið er sagt með vissu, hvernig á þessu stendur, eða bent á þau afbrigði tegundanna, sem gjöra þær svo sigursælar. f>að er þvi ekki von, að menn geti með fullri vissu talað um fullkomnun líffæranna hjá þeim tegundum, sem fyrir löngu eru horfnar af jörðunni. Agassiz og margir fleiri hafa sýnt fram á, að bygging hinna

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.