Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Side 21

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Side 21
173 dræmingjar og beltisdýr í Suður-Ameríku, séu beinir afkomendur hinna miklu skrýmsla af sama flokki (t.d. Megatherium), sem þar lifðu seinast á tertiera- tímanum: þessi stóru dýr eru dáin og hafa ekkert afkvæmi látið eptir sig, en í hellrunum í Brasilíu eru leifar af mörgum forndýrum, sem að stærð og öðru sköpulagi eru náskyld þeim dýrum, sem þar lifa nú, og það eru öll líkindi til, að sum þeirra séu forfeður þeirra dýra, sem nú eiga þar heima. Eptir kenningu Darwins eru aliar tegundir af sama kyni (genus) komnar af sömu tegund, svo ef t. d. í jarð- lögunum fyndist kyn með 6 tegundum, og svo koma fram jafnmargar skyldar tegundir í næstu jarð- myndun á eptir, þá eru einmitt mest líkindi til, að þær séu komnar af einhverri einstakri tegund af þessu kyni, en eigi af öllum eða fleiri; hinar eru dánar og horfnar, án þess að láta eptir sig af- kvæmi. Hjá dýraflokkum, sem eru að ganga úr sér og fækka á seinustu jarðöldum, eins og tann- leysingjarnir, er einmitt eðlilegast, að sem fæstar tegundir hafi látið eptir sig afkvæmi. 9. Útbreiðda jurta og dýra. f>egar menn skoða útbreiðslu lifandi hluta á jörðunni, verða menn fljótt varir við, að líking og skyldleiki dýra og jurta í fjarlægum héruðum er ekki eingöngu bundin við loptslag, landslag, jarðveg eða annað eðlisástand landanna. Til þess að sjá þetta, þarf ekki annað en benda á Ameríku; jurta- og dýralíf þeirrar álfu er alveg ólíkt því, sem er hinu megin við úthöfin, þegar undan eru tekin heimsskautalöndin norðlægu. Ef vér förum suður Bandaríki, suður Mið-Ameriku og Suður-Ameríku endilanga, verður fyrir oss alls konar landslag og loptslag; þar skiptast á mýrlendi og eyðimerkur, háir fjallgarðar og grasi vaxnar slétt- ur, skógar, vðtn og fljót, alveg eins og f gamla

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.