Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Side 29

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Side 29
181 þessir steinar eflaust flutzt þangað á jökum á ísöld- inni, líkt og ,,gneis“ frá Grænlandi berst með hafís til íslands, og er þá ekki ólíklegt, að ýmsar jurtir frá Európu hafi orðið samferða til eyjanna, f>egar vér nú athugum, að fræin hafa um marg- ar þúsundir alda getað borizt langar leiðir á svo margvíslegan hátt, þá væri þa& næsta undarlegt, ef ýmsar jurtategundir eigi hefðu getað útbreiðzt til fjarlægra ianda. |>essir flutningar eru engin til- viljun ; þeir fylgja vissum lögum, því vindar og straumar halda sinni rás eptir föstum reglum. Fræ- in geta reyndar ekki geymzt svo lengi óskemmd í fuglssarpi eða i söltu vatni, að þau á þann hátt geti borizt yfir hin miklu úthöf frá einni álfu til annarar, en þau geta hæglega flækzt fráeinni ev til annarar, og á eyjarnar við meginlöndin eða milli þeirra ; að fræ berist þvert yfir úthöfin, er miklu sjaldgæfara, svo jurtir úr ýmsum álfum blandast síður saman. Fræ frá Bretlandi eða vesturströnd- um Európu geta vegna straumanna eigi borizt sjó- leið til Ameriku, en þau fræ, sem golfstraumurinn ber sunnan frá Vesturheimseyjum til Európu, geta ekki þróast þar vegna loptslagsins. Ekki vita n,enn dæmi þess, að jurtir frá Ameríku hafi flutzt með fuglum til Englands á seinni árum; en þó getur það verið, að það hafi einhvern tíma komið fyrir; þegar maður hugsar um allar jarðaldirnar og hinn ómæl- anlega tima, þá sést fljótt, að slíkt þarf eigi opt að verða til þess, að það geti haft mikil áhrif, þegar loptslagið er heppilegt og aðkomujurtin getur stað- izt keppnina við þær, sem fyrir eru. Eyjar ný- myndaðar langt frá landi geta eflaust á þenna hátt fljótt orðið grasi grónar, þegar jarðvegur og loptslag eru hentug fyrir gestina. Menn voru lengi fram eptir hissa á því, að því

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.