Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Page 32

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Page 32
184 náttúrlega líka áhrif á sjóinn, svo sædýrin urðu að færast suður og skiptust þá i flokka, sem settust að suður með ströndum meginlandanna; þannig deildist líka hið forna norræna sædýralíf, svo það er nú aðskilið og hvað fjarlægt öðru, sem áður var sameinað Víðast hvar í Európu sjást merki ísaldarinnar alla leið frá Vesturströnd Bretlands austur að Ural og suður að Pyreneafjöllum. Kuldinn hefir líka náð suður yfir Síberíu; það sést á spendýralíkum, sem þar finnast frosin í jörðu, og fjallagróðurinn bendir líka til hins sama. í Libanon voru þá miklir jökl- ar á hæstu hryggjum, eptir þyí sem Dr. Hooker segir, og gengu skriðjöklar 4000 fet niður í dalina; hann fann líka gamlar jökulöldur í Atlasfjöllum, og í Himalayafjöllum sést það glöggt, að jöklarnir hafa fyrrum gengið miklu lengra niður í dalina. Á suð- urhveli jarðar á Nýja-Sjálandi eru enn þá jöklar á suðureyjunni, en þó hafa þeir áður verið miklu stærri. í Norður-Ameríku eru ísaldarmenjar á aust- urströndinni suður á 36° n. br., og á vesturströnd- inni suður að 46° n. br. í Suður-Ameríku voru áður mikla meiri jöklar á Andesfjöllum, en nú, og það undir sjálfri miðjarðarlínunni, en glöggar ísald- armenjar sjást beggja megin á þessu meginlandi frá 410 s. br. allt suður á syðsta oddann. Croll hefir reynt að sanna, að kuldinn hafi orsakazt af ýmsum breytingum á eðli jarðar, sem komið hafi af því.að hringskekkja jarðbrautarinnar jókst; hann kemst að þeirri niðurstöðu, að köld tímabil komi aptur og aptur með 10 til 15 þúsund ára millibili, en ýmsar samverkandi orsakir, sem hér yrði oflangt að skýra frá, koma því til leiðar, að enn þá lengra líður milli þeirra tímapunkta, er kuldinu nær hæstu stigi. Croll reiknar út, að hin seinasta mikla ísöld hafi

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.