Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Page 48

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Page 48
200 en bæxlin eru sameiginleg fyrir alla hvali og sýna skyldleika þeirra innbyrðis. og að þeir allir eiga ætt sína að rekja til sama frumdýrsins. f>ess kon- ar lík líffæri til líkrar brúkunar eru mjög algeng í fjarstæðum hópum, t. d. líking pokadýranna og margra annara spendýraflokka, rafmagnsfæri hjá ýmsum óskyldum fiskum, ljósfæri hjá ýmsum skor- dýrum o. m. fl. Stundum stendur sérstaklega á, svo að líking líffæranna hjá ýmsum fjarstæðum teg- undum er ekki komin fram af því, að þau hafi orð- ið að haga sér eptir sömu lífsskilyrðum, heldur á nokkuð annan hátt. Sumar fiðrildategundir í heitu iöndunum sýnast í fljótu bragði alveg eins útlítandi og aðrar óskyldar tegundir; þetta sá Bates fyrstur í Suður-Ameríku. Hann fann opt á stangli innan um stóra hópa af fiðrildakyninu Ithomia einstök fiðrildi af sjaldgæfu kyni, sem heitir Leptalis, og voru þau fiðrildi alveg eins lit og útlítandi eins og hin, eins og þau hefðu hermt eptir þeim. Að breytingar hafa hér orðið í svo undarlega stefnu, heldur Bates að komi af því, að Leptalis hefir bet- ur bjargazt og komizt undan hættu vegna líkingar sinnar við hitt fiðrildið, sem á fáa óvini, því fuglar og önnur dýr vilja það ekki, svo það er þess vegna mjög algengt; ef nú nokkrar flugur af hinni teg- undinni voru svo heppnar að komast undan óvinum sínum, með því að þær voru líkar hinni tegundinni, þá var eðlilegt, að þær helzt létu eptir sig af- kvæmi, sem líkastar voru, og svo kom líkingin fram af verndinni, sem tegundin þannig varð aðnjótandi. Wallace og Trimen hafa tekið eptir líkum eptir- hermum (mimicry) hjá ýmsum fiðrildum á Indlands- eyjum og hjá öðrum skordýrum ; Wailace hefir jafnvel séð eitthvað þvílíkt hjá einstöku fuglum. f>essar eptirhermur eru líklega algengastar hjá

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.