Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Side 70

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Side 70
222 hefur það þó verið, sem báðar bækurnar höfðu eins, og á það benda orð Ara í formálanum : „pá skrifapa ek pessa (o : hina ingri bók) of et sarna farmí. Ari segir í formálanum, að hann hafi slept ætt- artölu og konunga æfi í síðari bókinni, af því að biskupunum og Sæmundi presti „líkaði svá at hafaíí. Ekki segir hann, hvers vegna þeir rjeðu honum til að sleppa þessum köflum, enn vafalaust hefur orsökin verið sú, að þeim hafa þótt þeir hverfa of langt frá því, sem var mark og mið bókarinnar, enn það var að gefa ifirlit ifir helstu viðburði i sögu íslands. síðan landið bigðist. ,.Konunga æfin“ var þessu efni að mestu leiti óviðkomandi, og hafi henni verið dreift innan um bókina hingað og þang- að, eins og jeg áður hef leitt líkur að, þá hefir hún víða slitið í sundur meginþráð bókarinnar. Og það sem til ættartölunnar kemur, þá hafa biskuparnir eflaust verið á þeirri skoðun, að höfundurinn ætti í þessu stutta söguágripi að leggja meiri stund á að skira frá sögulegum viðburðum enn frá ættum manna. Að svo hafi verið, á það bendir meðferð Ara á þeim fjórum ættartölum, sem hann hefur gert ágrip af og haldið í ingri bókinni og áður vóru til- færðar. í eldri bókinni liggur höfuðáherslan á ætt- artölunni, enn þess er að eins getið sem aukaatrið- is, hvar hver landnámsmaður hafi sest að. í ingri bókinni eru ættliðirnir ekki raktir, enn höfuðáhersl- an er lögð á hinn sögulega viðburð, hvar land- námsmaðurinn settist að, og þess er jafnframt get- ið, hvaðan landnámsmaðurinn var upprunninn, sem gat haft mika sögulega þíðingu. Samt sem áður hefur það fráleitt verið tilætlun biskupanna og Sæmundar, að Ari skildi sökkva þessum tveimur köflum, ættartölu og konunga æfi,

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.