Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Side 80

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Side 80
232 rannsóknir Sigurðar Vigfússonar*. I.ika ber öllfrá- sögnin um ferðalag þeirra Ketilbjarnar eðlilegri og frumlegri blæ í Sturlungu enn i Landnámu, Enn einna merkilegast af öllu er þó það, að tvö orða- tiltæki Sturlungu finnast orðrjett í íslendinga- bók Ara hinni ingri , þar sem talað er um Ketilbjörn. það eru orðin : „Ketilbjörn Ketilsson, maðr norœnn^, og : Frá Ketilbirni (ok Helgu) eru Mosfellingar komniH. A báðum þessum stöðum kemst Landnáma nú öðruvisi að orði, enn íslend- ingabók sínir, að Sturlungutextinn er hjer óbreittur og upphaflegur, eins og hann var hjá Ara. Að sumu leiti er Landnámutextinn greinilegri enn Sturl- unga ; þar.nig segir Landnáma, að Ketilbjörn hafi verið úr Naumudal og að hann hafi haft skipið Elliða og lent í Elliðaárós, og getur verið, að þetta hafi staðið í frumriti Ara, enn sje slept úr í Sturl- ungu. þ>að virðist þannig vera fullsannað, svo að ekki verður á móti haft. að Sturlunga hafi hjer geimt það frumrit Ara, sem er grundvöllurinn undir Land- námu vorri, það hið sama, sem Hauksbók segir, að þeir Sturla og Styrmir hafi haft firir sjer, þegar þeir skrifuðu Landnámur sínar, eða annað því líkt. þ>ó að kaflinn sje lítill, sinir hann, að frásögnin um landnámsmennina í þessu frumriti Ara hefur verið mjög greinileg og nákvæm og hefur að öllu sam- töldu ekki staðið á baki Landnámu vorri, að því er þetta snertir. Að svo nákvæm frásögn hafi staðið í „áttartölu“ íslendingabókar hinnar eldri, er mjög ólíklegt; ef svo hefði verið, þá væri nafnið „áttartala41 rangnefni. Enn hjer tekur það líka af öll tvímæli, að vjer höfum enn ættartölu Ketil- 1) Arbók fornleifafjelagsins 1880 — 1881 á 22.—23. bls.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.